911 Ég fór í sund í gær með Hjalta. Í sundi hittum við Sverri, Helga og Arnar svo voru Jónsi, Bjössi, Bogi Gum. og Bogi Ragg. líka í sundi. Sverrir bendi mér á eitt "sniðugt" varðandi hryðjuverkin en þau voru framin 09/11 2001. 09/11 er einmitt sama tala og neyðarsími Bandaríkjanna "nine-one-one". Kaldhæðni það, ætli þetta hafi verið skipulagt?
13:36
Heimurinn í áfalli! Ég er í skólanum í sjokki eftir viðburði gærdagsins. Tvær flugvélar fóru á World Trade Center og náðust bæði slysin á myndband, ein flaug á Pentagon og þriðja hrapaði og átti væntanlega að fara á Hvíta húsið. Þessi hryðjuverkastarfsemi á eftir að breyta mörgu t.d. gef ég Bandaríkjamönnum (og öðru siðmenntuðu fólki í heiminum) grænt ljós á að uppræta öll hryðjuverkasamtök hvar sem þau eru og hvað sem það kostar. Ef ríki sem hýsa þetta fólk segja nei, þá eru þau bara hluti af hryðjuverkamönnunum og verða bara tekin með. En mikið er nú samt gott að búa á Íslandi! (Þó ég hafi nú verið smeykur þegar ég sá flugvél fljúga yfir mér í gærkvöldi:)
09:44
Virkar bloggið mitt?
09:36
Viðmótshönnun lífsins:) Ég er í viðmótshönnun sem fjallar um notendaviðmót og að gera forritin sem aðgengilegust fyrir notendur. Kennarinn var að segja frá einni leiðinni sem er að skera út fólk í pappa í fullri stærð og hafa það við hliðina á sér. Svo er lýsing á fólkinu með. Þetta á að gefa forritaranum góða innsýn í fólkið sem hann er að forrita fyrir. Þetta var gert á einhverjum stað og forritararnir fóru jafnvel að tala við fólkið og lána því jakkana sína. Kennaranum fannst þetta mjög sniðugt. Ég segi ekkert! Spurning hvort maður verði að sjá Pappírs-Pésa aftur til að ná þessu fagi!
12:44
Byrjaður í HR! Nú sit ég fyrir utan stofuna mína í Háskólanum í Reykjavík og er að fara í tíma. Það eru liðnar tvær vikur af skólanum og það er mjög mikið að gera, sérstaklega þar sem ég vinn þrjá daga í viku í frístundaheimili í Seljaskóla frá 1 - 5. Fyrsta vísindaferðin er á föstudaginn en ég kemst ekki í hana af því að ég var svo seinn að borga nemendafélagsgjöldin að ég var ekki á lista yfir þá sem máttu skrá sig í tíma.
13:54
Innflutningsteiti Guðjóns og Rakelar KLÍKAN! Hlynur, Bendt, Gummi Joh. og Jói Jökull.
Myndir teknar af gummijoh.net
21:32
Ég og Bendt segjum okkar skoðun. Þetta er víst frjálst land!
 Myndir teknar af gummijoh.net
21:31
Jói hélt uppi stuði með gítarinn og Gummi tók nokkrar hreyfingar með!
 Myndir teknar af gummijoh.net
21:28
Guðjón var í banastuði síðasta laugardag en þá hélt hann innflutningspartý í nýju íbúðinni. Rakel og Ása voru líka mjög sáttar.
 Myndir teknar af gummijoh.net
21:16
Afmælið hennar Fríðar.
 Fríður hélt upp á afmælið sitt 11. ágúst en hún varð 20 ára 14. ágúst. Gunnar frændi pabbi hennar Sunnu frænku leit í heimsókn! Myndin er tekin af snillingur.net
16:01
Glaðir á Gauknum!
 Helgina eftir verslunarmannahelgina fórum ég og Bendt á Gaukinn, hérna er Bendt að taka sjálfsmynd af okkur á barnum! Okkur fannst það mjög sniðugt! Myndin er tekin af snillingur.net
15:56
Sápubandí!
 Á laugardeginum í Eldborg fórum við í sápubandí í boði Jóa Jökuls, algjör snilld! Myndin er tekin af snillingur.net
15:50
Pepsí-löggan!
 Ég fór í Eldborg um verslunarmannahelgina. Nóg var af löggum á svæðinu í boði Pepsí! :) Myndin er tekin af snillingur.net
15:46
Verum glöð!! Fyndið þetta fólk sem gerir það lífsins takmark að fara alls ekki neitt um verlunarmannahelgina og finnst hún bara vera vond. Fyrir fimm árum fór ég um verslunarmannahelgina á Halló Akureyri (þegar það var haldið í fyrsta skipti) í góðum gír. Þessa helgi kynntist ég Ómari, sem er að fara með mér á Eldborg, og erum við búnir að vera bestu vinir síðan:) Ef við hefðum ekki farið á þessa útihátíð hefðum við aldrei kynnst. Fyrir tveimur árum fórum ég og Hjörtur á Þjóðhátíð í Eyjum, þar hittum við fyrir hana Dagnýju frá Þorlákshöfn og spjölluðum við hana lengi vel. Nú tveimur árum seinna byrjuðu Hjörtur og Dagný bara saman í góðum fíling og eru voða happy, þetta hefði ekki gerst nema ef við hefðum farið til Eyja. Svo hittir maður alltaf gamla vini og kynnist nýjum á útihátíðum.
Ég segi því bara skemmtiði ykkur vel næstu helgi hvar sem þið eruð hvort þið farið til Eyja, á Kántrí, Elborg og líka þið sem sitjið bara heima. Ég segi nefnilega bara verum glöð, hvort sem þið þurfið að undirbúa helgina með lista eða ekki:)
00:47
|