Matfundafélagið framtíðin |
|
|
6.3.01
Góð spurning. Er almennt vilji til að halda fund á næstunni? Menn eru reyndar búnir að vera frekar uppteknir upp á síðkastið en við getum nú alltaf gefið okkur tíma til að borða. Ég leita einnig eftir sjálfboðaliðum sem geta skrifað lítið forrit sem velur hvaða stað Framtíðin gagnrýnir. Þetta gæti verið java-applet sem randomizar alla möguleika með dagsetningu sem seed. Allir æstir? 27.2.01
11.1.01
Nú var undirritaður með í Staðarskála-matinu. Fékk hann sér hamborgara með osti og beikoni. Ásamt þessu þá var klá-tjæsa og tvær gúrkusneiðar. Vantaði tilfinnanlega tómat. Nú verður þessi borgari ekki dæmdur eftir "borgara" skalanum, heldur vegaborgaraskalanum (tekið skal fram að sá skali er skör neðar en borgaralistinn). Staðarskálaborgarar eru reyndar fyrirmynd allra annara vegaborgara á Íslandi. Var borgarinn sæmilegur og féll vel að gómi dómarans, en hann jafnaðist ekki á við það sem matfundarfélagar eru vanir. 6 vegaborgarar af 10 vegaborgurum. 9.1.01
Staðarskáli: Staðarskálaborgari Brynjólfur gert grein fyrir Staðarskálanum og verður það ekki endurtekið hér. Fékk mér tvöfaldan osta-road-borgara. Ég ólíkt Brynna líkaði hreint ágætlega við hann. Hann var sloppí og djúsi....alveg eins og vegaborgarar eiga að vera. Sósan var fín og salatið alveg þokkalegt. Ég, ólíkt flestum GSV-liðum saknaði tómatsins ekki mikið. 7 borgarar af 10. 8.1.01
![]() Staðarskáli : Staðarskálaborgari Á leiðinni til Akureyrar stoppaði GSV í Staðarskála til að fá sér Road-burger. Maður gerir ekki miklar kröfur þegar um sjóleiðis stopp er að ræða. Í stuttu máli sagt var borgarinn ekki nógu góður. Ekkert ferskt grænmeti -allt niðursoðið eða steikt í klessu. Þetta gerði það að verkum að borgarinn varð mjög sloppí. Umhverfið í þessu höfuðvígi íslenskrar "þjóðvegasjoppumenningar" er eins flestir þekkja ekki upp á marga fiska. Málverk af manninum sem byggði býlið og sjónvarp með barnaefni skreyta staðinn. Staðarskáli hefur ekki breyst mikið á síðustu árum. Allt stendur í STAÐ í STAÐARskála. Eini ljósi punkturinn voru franskarnar. Heitar, bragðgóðar og stökkar. Staðarskálborgarinn þjáist af dreifbýlisverðbólgu. Allt of dýr. Rúmlega 900 kr. fyrir hamborgara franskar og að sjálfsögðu sósu og salat. Ég sleppti reyndar sósunni og salatinu og prúttaði borgarann því í rúmlega 700 kall. Sem sagt 3 borgarar af 10 mögulegum. 17.12.00
![]() Vitabar ,,Gleym mér ey" -borgarinn Bloggerinn kominn í lag eftir ólag. Hélt á tímabili að RHI hefði lokaði fyrir aðgang að blogger-síðunni. Hvað um það. Framtíðin fór í mýflugumynd ( ég og Kiddi) og fékk sér margumtalaðan ,,Gleym mér ey"-borgara. Vissulega góður varíant þar á ferð en þar sem að ég er ekki mikið fyrir gráðost líkaði mér borgarinn ekki. Verðið á borgaranum er í hærri kantinum, 900 kr fyrir hamborgara, skífur og kók. Þó má skýra þetta háa verð með gráðosti..... Þjónustan var frekar slöpp. Við þurftum að bíða í meira en hálftíma og það tók a.m.k. korter að fá athygli afgreiðsludömunnar. Reyndar staðurinn fullur af fullum ozurum og þjónustulið fáliðað. Ozarar voru með mikil skrílslæti og kom Kristgy með þá skemmtilegu athugasemd að þarna væru komnir þroskaðir pönkarar. ( Nánari útskýring fæst hjá Kristgy). Við sem ekki vorum "one of oz" vorum í miklum minnihluta þarna inni og sást langar leiðir að fastagestir Vitabars sem eru flestir sjóaðir í barbransanum voru ekki alveg að gúddera mjólkursamsöluliðið. Sem sagt borgarinn góður varíant, hentaði ekki mínum laukum, gott meðlæti, slöpp þjónusta ( þetta kvöld) og skrílslæti mikil. 6 borgarar af 10 mögulegum 10.12.00
AMERICAN STYLE (a.k.a. Stíllinn)
|
|