|
Fréttablaðið, Mið. 29. ágú. 16:35
Hafnaði notkun myndbanda
Sænskur dómstóll hafnaði í dag beiðni saksóknara um að fá heimild til þess að leita á sjónvarpsstöðinni TV4 til þess að athuga þar myndbönd frá mótmælaaðgerðum á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Gautaborg í júní síðastliðnum í tengslum við rannsókn á lögregluofbeldi þar. Þrír mótmælenda létu lífið, en enginn lögregluþjónn hefur verið ákærður fyrir ofbeldi eða morð. 560 mótmælendur voru handteknir, en flestir látnir lausir strax aftur. Rúmlega tuttugu manns hlutu þó a.m.k. fimm mánaða fangelsisdóm.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að fréttaflutningur í fjölmiðlum sé grundvallarþáttur í lýðræðinu og mikilvægt sé að nafnleyndar sé gætt. Fréttastjóri sjónvarpsstöðvarinnar sagði þessa niðurstöðu sigur fyrir fréttamennskuna, en saksóknarinn sagði að rannsókn málsins yrði fyrir vikið ekki jafn vönduð.
|