gunnare@hi.is
... algjört rassgat
gunnare
Um síðuna
Um mig
Póstur
Gamlar færslur

Innlent
nagPortal
Hrekkjusvin
Vefþjóðviljinn
Heimdallur
Strikið
Tilveran
Háskólinn
Erlent
Php
HotScripts
Java
W3C
Blogger
Snóker



Valid CSS!

14. september 2001 - kl. 24:34 - #
Bréf

Mér var að berast bréf:


Kæri ungi sjálfstæðismaður!

36. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna verður sett kl. 19.00 í
Félagsheimili Seltjarnarness í kvöld! Kl. 20.00 hefst fundur þinggesta
með ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Ég hvet þig eindregið til að mæta.

Bestu kveðjur,

____________________
Magnús Þór Gylfason,
framkvæmdastjóri SUS


Þetta er, að ég held, fimmta bréfið sem ég fæ sem hvetur mig til að mæta á þetta þing. Spurning um að láta sjá sig. Slagorðið er gott, því verður ekki neitað.

13. september 2001 - kl. 24:48 - #
Tvær góðar ástæður

Ég hef ákveðið að byrja að blogga aftur. Fyrir því eru tvær ástæður:


    Katrín er búin að taka mig af linka síðunni sinni
    Geir Fr. setti mig á listann "Fólk" í rss gáttinni sinni og það náttúrulega gengur ekki að vera alltaf næst neðstur á þeim lista.

21. maí 2001 - kl. 21:43 - #
Heimsfrægð

Í dag birtist mynd af mér, Daða og Dóra í íþróttablaði DV og smá viðtal við Dóra fylgir með. Dóri kannast þó ekki við allt sem blaðamaðurinn segir. Svo sem ekkert nýtt að blaðasnáparnir á DV fylli í eyðurnar, enda alvöru vestrænn fjölmiðill.

En semsagt, mynd af mér á blaðsíðu 30 í DV, ég er í miðjunni.

Já, svo væri ansi gott ef einhver nennir að senda mér screenshot af síðunni minni. Ég hef nefnilega bara séð hana í tölvunni minni (800x600 upplausn) og væri alveg til í að sjá hvernig hún er að gera sig á öðrum vélum. Ég þykist nú þó vita að hún komi illa út (það er ef eitthvað sést yfirhöfuð) í netscape. En mér er bara nokk sama um það.

11. maí 2001 - kl. 19:45 - #
Breytingar

Ég er búinn að vera að vinna örlítið í síðunni minni í dag. Breytti um útlit, gerði dagsetningar forritið í php og hætti að nota <table> tagið. Í staðinn er ég farinn að nota CSS og er stoltur af því. Ég var búinn að reyna eins og ég gat að gera nýtt útlit með old-school aðferðum en það kom, að mínu mati, aldrei nógu vel út. Síðan fór ég að skoða css-ið hans Mása og hreifst mjög.

Sendið mér endilega póst ef þið viljið uppfæra dagsetningarlagfæringar forritið ykkar.