J A M M S


10.8.00
09:11
Á miðnætti í gær var vefsetrið hmmm.is formlega opnað. Ég hef ekki verið að blogga mikið í sumar en hætti því hér með og kem til með að halda skrifum áfram á hmmm.is. Ef ég sé ástæðu til að hefja aftur einkablogg þá að sjálfsögðu geri ég það. Takk fyrir mig!

26.7.00
09:52
Boðsundssveit KR í gamla dagaÆska. Waddafuuck, ég er ekki orðinn gamall en það sem fer mest í taugarnar á mér er að sú var tíðin að það breytti litlu þó ég dytti á hausinn, bryti handleggi, fengi gat á höfuðið eða ræki nagla í lappirnar á mér. Alltaf var allt komið í lag á innan við viku (eða svo). Í dag má ég varla reka mig í án þess að vera ónýtur í mánuð. Hvað á þetta að þýða? Það sem verra er.. þetta gerir ekkert nema versna með aldrinum. Það er þó ýmislegt hægt að gera, lyfta, halda sér í formi, hringja í þjóðarsálina!!!....Eða.......... Það er búiða að finna leið til að stöðva hrönun einstakra frumna, (já ég er að vitna í þáttinn á mánudaginn) og ekki nóg með það heldur verður hægt að fá líkamann til þess að mynda nýja líkamshluta s.s. lifur, hjarta og fleira (reyndar ekki hægt ennþá en það hefur tekist með músum). Lausnin er komin....www.bodyparts.com



20.7.00
14:46
Allir greinilega sáttir við hvað Greenspan hafði að segja. Nasdaq vísitalan stendur í 4168 stigum sem er 2,8 % hækkun, það er merkilegt vegna þess að síðust tvo daga hafa fjárfestar almennt verið að selja bréf í vísitölunni m.a. vegna hræðslu við ummæli Alans. Nasdaq lokaði niður um 2,8 % í gær og ~ -1% þar áður. Þetta var GúrkuTíðarSpeki dagsins en hún var einmitt í boði hmmm.is

10:19
M A S T E R M I N DJæja þá er komið að því að Alan Greenspan tali. Þegar maðurinn talar skelfur allur fjárestaheimurinn. Einn virtur verðbréfaspekúlant hafði þetta að segja um málið: ``People are a bit concerned that maybe he might say some things that we're not expecting him to say, or that we rather he not say,''. Gott dæmi um að fólk virðist aldrei vita hvað maðurinn ætlar að segja, eða hvaða afleðingar það hefur!


09:58
Það fer fljótlega að líða að opnun hmmm.is. Grafíski hönnuðurinn okkar vinnur hörðum höndum að leggja lokahönd á útlit með aðstoð stjórnar. Póstþjónninn er orðinn nothæfur og nú er hægt að senda mér póst á jons@hmmm.is.



17.7.00
16:10
Ég fór að sjá MI 2 um helgina og get ekki annað sagt en: "Mér fannst hún drullu góð". Ég fékk mína spennu, hraðskreiðu bíla, fullt af ofbeldi, flotta myndatöku, góð bardagaatriði og góðan endir. Ég þoli ekki þegar fólk gagnrýnir myndir fyrir að vera Hollywood myndir. HVAÐ ER AÐ HOLLYWOOD MYNDUM? Maður veit að hverju gengið er. Ég fer í bíó til að lyfta mér upp, ekki til að skilja heiminn betur eða grenja. Ég vill minn "happy ending" og skammast mín ekkert fyrir það. Annað dæmi um þetta er öll gagnrýinin sem "Me myself and Irene" fékk. VIÐ HVERJU BJÓST FÓLK? Ég var mjög sáttur við myndina, þetta var týpískur Jim Carrey og ég fékk það sem ég borgaði fyrir, hlátur og góðan endir.....allir sáttir. Niðurstaðan er því: Hollywood formúlan virkar fínt, annars væri hún varla við lýð eftir allan þennan tíma!!!!! Nú er ég ekki að reyna að niðurlæja þessa dæmigerðu ArtíFartí-týpu sem finnur sig í slíkum pælingum, ég er frekar að benda á að staðhæfingin: "hollywood formúlan er orðin gömul tugga" er orðin yfirnáttúrulega gömul tugga!!!! skoðun



13.7.00
10:41
Nú já, svo má ekki gleyma að ég fór í heimsókn til Arnars og Tómasar um daginn. Eftir þessa heimsókn get ég fullyrt að félagarnir eru þeir þrifalegustu og heimilislegustu sem ég hef fyrir fundið. Þegar ég kom í heimsókn var Arnar að ryksuga Stofuna/eldhúsið og Tómas upptekinn við að baka laufabrauð. Nú mér var að sjálfsögðu boðið upp á kaffi og bakkelsi á meðan ég beið eftir að Arnar kláraði uppvaskið og tæki af sér svuntuna. Eftirtektarvert var að ekki var hægt að finna nokkuð rusl né ryk neinstaðar. Svo var greinilegt að heimilisbókhaldið var í lagi því öllum reikningum, dagblöðum og tímaritum var raðað snyrtilega í þar til gerðan blaðaskáp við hliðina á ísskápnum. Ekki verður annað sagt um þessa drengi en að þeir séu snyrtimenni með meiru og ætla ég héðan af að taka þá mér til fyrirmyndar.

10:20
Nú er unnið hörðum höndum að því að búa til nýja heimasíðu fyrir félag véla & iðnaðarverfræðinema. Síðan er ekki tilbúin en hönnun hennar er komin á lokastig. Þegar ég og Arnarar erum orðnir ánægðir með forsíðuna linka ég örugglega á hana hér og býð fólki að segja sína skoðun.

Ég er að fara að panta mér þessa fartölvu. Ef einhver er sjúkur áhugamaður eins og ég þá eru hér nokkrar áhugaverðar tölur (600, 128, 12, 14,1" + DVD (sem er reyndar ekki tala (en þú vissir það....(síðasti sviginn er bara svona til að hafa sviga inni í sviga inni í sviga inni í sviga))))



6.7.00
10:00
Engar uppfærslur í óralangan tíma. Ég er enn lifandi.

Þórsmerkurferðin heppnaðist í alla staði með eindæmum vel og ef vel er að gáð má finna mynd af mér í þriðjudagsblaðinu, að spila á gítar í brekkusöngnum. 20 stiga hita nánast allan tímann. Eitt fannst mér sérstaklega skemmtilegt. Það var fólk í ferðinni sem fór greinilega á staðinn með það eitt að markmiði að borga ekki. Ég veit ekki hversu oft ég heyrði þessi orð:"Armbandinu var stolið af mér", eða "hvaða helv... 4000 kall, þú er nú meira helv...". Svo er gaman að segja frá því að ég og Magga vorum að reyna að rukka mann sem var svona 110 kg af vöðvum. Hann hefði getað pakkað okkur báðum saman og stungið okkur í vasann......og hann borgaði eftir að hafa nöldrað í svona 20 mín og blótað okkur u.þ.b. 47 blót/mín.

Ég hef reyndar ekki spjallað um þetta áður en ég ásamt Sigfúsi, Ívari, Gunna og Gumma vorum að stofna léniðhmmm.is. Ég kem örugglega til með að segja meira frá þessu seinna.



22.6.00
17:18
ég var að bæta link á gamla jammsið mitt, ég fékk kvartanir yfir því að það væri allt horfið. Það finnst hér og svo er líka linkur neðst á síðunni fyrir neðan counterinn

16:24
Ráðlegging dagsins: Ekki fara sæbratina heim, það er verið að malbika syðri hluta hennar, frá seðlabankanum að Snorrabraut.

Lord of the Rings



19.6.00
16:31
Þórsmörk

13:16
Long, long ago (about a year) in a galaxy far, far away (actually in a building about ten miles from the Sharky lab), there was a perceived x86 CPU monopoly by a powerful corporation named Intel. While some competition did come from companies with names like Cyrix and WinChip, Intel defeated those competitors with superior products and the marketing might of little dancing men in shiny contamination suits. "Intel Inside" was their battle cry and none could match their overwhelming market share.

And then Advanced Micro Devices came along and laid the smack down upon Intel, bringing unprecedented levels of competition and innovation that peaked with early introductions of the 1GHz Athlon and the 1GHz Pentium III. As these two battle it out for OEM contracts and consumer mindshare, we have watched in fascination and excitement, wondering how this megahertz war will end. Upping the stakes, AMD continues the fight with the release of their Duron processor, the new competitor to Intel's Celeron.



14.6.00
14:24
Þið sem spiluðuð (spilið) VísindaSkáldsöguTölvuleiki ættuð að kannast við svokallað Plamsa drif. Það er drif (t.d. í geimskutlur) sem tók við af hefðbundnum efnabrunavélum. Nú eru svona drif að verða að veruleika. Nasa er að hanna frumgerð. Plasma eða rafgas er svokallað fjórða ástand efnis og þar þeytast rafeindir, róteindir og nifteindir handahófskennt um og mynda "gasið". Ný geimskutla knúin þessu drifi á að geta komist til mars á helmingi styttri tíma en hægt er í dag. Raforka er notuð til þess að hita efnið á rafgasform, í þessu tilviki 50.000°C


.

11.6.00
19:12
Hér eru myndirnar af lokajammi 2. árs

1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19



7.6.00
14:55
Það hlaut að koma að því......SímaVírus!!!!!!!!!!

"Antivirus firms say they’ve found the first-ever virus with a payload aimed at mobile phones. “I-Worm.Timofonica” is an “ILOVEYOU”-type virus with a twist. After infecting computers, it generates random phone numbers from a range of known mobile phones in Spain, then sends spam messages at those phones. According to F-Secure Inc., there have been about 100 reports of infections so far, all in Spain."

11:57
Ég rakst á skemmtilega íslenska heimasíðu áðan. Þetta er heimasíða Gunýjar A. sem ég veit reyndar ekki hver er? Þar má til dæmis finna link á þessa einfölduðu grunn útskýringu á Efnarafli, mjög skemmtilega sett fram.



6.6.00
10:38
Etu að spá í fartölvu, þessi er ansi girnileg



5.6.00
10:48
AMD rúlar. Rétt í þessu var ég að lesa review um nýjan AMD örgjörva, eða einginlega endurbót á þeim gamla (Athlon). Til að gera langa sögu stutta er nýi örgjörvinn ( Thunderbird ) búinn meira minni á örgjörvarnum sjálfum, sem keyri þ.a.l. á sama klukkuhraða og hann. Þetta geri hann töluvert hraðvirkari og eykur fjörda smára úr 22 milljónum í 37. Þessi nýi örgjörvi kemur á markað um miðjan Júní og 1 Ghz útgáfan mun kosta 900$ ( m.v. intel 1000$ ). Hann er hraðvirkari en 1 Ghz intel örgörvinn og í sumum prófum allt að 20% hraðvikari. Svo er ekki nóg með það að hann sé ódýrari heldur notar hann næstum þrisvar sinnum ódýrara innra inni. Áfram AMD.



2.6.00
09:20
Ég fór að sjá Elton John í gær. Þvílík snilld. Kallinn spilaði hátt í þrjá tíma og var mjög hress. Við keyptum okkur einmitt miða í stúku en undir lokin var stemminign það góð að við fórum niður og vorum afganginn af tónleikunum fyrir framan sviðið. Miðarnir voru dýrir en ég get ekki sagt annað en þeir hafi verið vel þess virði.

09:04
Ég rakst á forrit í dag sem heiti Media Enforcer. Það gerir þér kleift að gera nákvæmlega það sama og Metallica & Dr. Dre gerðu. Hver sem er getur fylgst með því hver er að sækja lög með t.d. Celine Dion og látið tölvuna skrá alla þá sem nota napster til þess. Það sem er enn merkilegra við þetta er að næsta útgáfa kemur til með að leyfa þér að fylgjast með sambærilegum leitarvélum, t.d. Gnutella.



31.5.00
16:17
Ég var rétt í þessu þeim heiðri aðnjótandi að fá að sjá "Preview" af nýju Bubbasíðunni hans Arnars. Þetta er StórGlæsileg síða og mig hlakkar til að sjá lokaútgáfuna þann 17. júní

15:31
Jæja þá er Tölulega greiningin loksins komin.



30.5.00
10:24
Þá er Dr. Dre búinn að banna sína helstu áðdáendur frá napster. Þvílík vitleysa. Metallica og Dr. Dre gætu alveg eins kastað saur (saur og gott íslenskt orð) í aðdáendur sína. Þetta gerir ekkert gagn, þó að þeim takist að drepa napster þá stöðva þeir alls ekki dreyfingu tónlistar á netinu.



29.5.00
08:58
Verð að vera sammála Stebbs. Af hverju kaffi, því kaffið er shittið



26.5.00
12:08
Jæja það kom að því, Stebbs er farinn að skrifa reglulega og notar blogger sér til aðstoðar. Áfram Stebbi.



25.5.00
15:14
Í dag var megrunarklúbburinn "ístran inn" stofnaður. Stofnfélagar eru þrír. Þeir eru allir fituklessur með meiru. Helsta markmið félagsins er að berja hvorn annann sem oftast í magann og athuga hvort fitan dreyfist ekki um líkamann. Stefnan er að verða að jafndreyfðum fitubolta sem hefur betri floteiginleika en þessi týpíska fituklessa. Lokamarkmiðið er svo að koma opinberlega fram og keppa í floti við meistaraflokk fitusnauðra.

14:26
Ólafur Ragnar Grímmson að fara að gifta sig. Greinin er hér. Hvað er langt síðan að konan hans dó?

12:50
Fólk er ennþá að senda mér póst á jons@hi.is. Ég er farinn að vinna og adressan mín þar er rannsokn@malbik.is, endilega hætta að senda mér póst á hi.is því það er svo leiðinlegt að sæja póstinn með IMPinum. Núna er Stebbi búinn að bætast í instant messenger hópinn. Go stebbi, nafnið hans er stebbikri. Hvernig væri nú að fleiri fengju sér aim. AIM má sækja hér.

11:19
Stebbs var að minna mig á að ég tók fullt af myndum í próflokapartýinu hjá Gauta. Ég var búinn að steingleyma þessu. Ég fer að skella þeim inn. Ég lofa þeim eftir helgi í síðast lagi. Á þessu myndum má til dæmis finna góða mynd af mottunni hans GAYr's, Burkna OfurStærðfræðiHaus&VarmaMann í góðum gír undir boðstofuborði og svo sönghóp góðra manna undi stjórn söngstjórans okkar.



24.5.00
16:02
Smá breyting á áætlun. Ég verð á bústaðarveginum að bora í kvöld, Sæbrautin seinna. Ég verð nálægt Perlunni eftir klukkan sjö. Flauta bara þrisvar!!!!!

11:00
Ég var að vinna til 21:00 í gær og vinn sennilega lengi í kvöld. Líklega verður hægt að sjá mig á Sæbrautinni einhverntíma í kvöld að bora upp götuna. Ég er að fara að bora 24 göt í Sæbrautina og rannsaka sýnin. Þetta segir þér að Sæbrautin verður malbikuð í sumar, svo ef ert þessi "Spóla&SpyrnaEins&MóFó" týpa þá er gott tækifæri til að rústa Sæbrautinni ákkúrat núna.

08:57
Ég er búinn að fá mér aol instant messager. Screen nafnið mitt er jonssig.



23.5.00
10:03
Pirringur dagsins er þjónustustig íslenskra fyrirtækja. Eins og ég hef minnst á áður er ég að vinna á rannsóknarstofu fyrir malbikunarstöð. Nýherji þjónustar Stöðina, reyndar eru þeir ekki þekktir fyrir bestu þjónustuna en það sem gerðist hér er gott dæmi um þjónustulund íslenskra fyrirtækja. Við eigum fartölvu sem ég nota. Yfirmaður minn var ósáttur við hversu stutt batteríið var farið að duga og hringdi því í nýherja og krafðist skýringa (vélin er einungis 1 og 1/2 árs og batteríið er sjaldan notað). Sölumaðurinn gerði að sjálfsögðu það "eðlilega" í stöðunni og kenndi notandanum um að láta batteríið ekki klárast alveg endrum og sinnum. Ég veit ekki hvort maðurinn sagði þetta af fávisku eða ekki en allar nýlegar fatölvur hafa Li-Mh batterí sem þarf alls ekki að tæma. Ekki nóg með það heldur er ráðlagt að geyma batteríin hlaðin. Þetta er einmitt það sem ég er að tala um. Íslensk fyrirtæki, nánast sem heild, hugsa bara um daginn í dag. það er almennt viðurkennt að ef eitthvað bilar þá er það notandanum að kenna og þess vegna hækkar þjónustustigið ekki. Sendu mér endilega Skoðun!



22.5.00
16:24
Ég var að lesa skrif Geirs um lögleiðingu ólympískra hnefaleika á íslandi. Ég get hreint ekki sagt að ég sé sammála. Það vill svo til að ég þekki fólk sem æfir hnefaleika og hef horft á bardaga. Það er vissulega hægt að slasa sig í þessari íþrótt, en þegar litið er til alls ferils boxara eru meiðsl í ólympískum hnefaleikum í lágmarki. Á Íslandi eru löglegar bardagaíþróttir þar sem leyfilegt er að rota árásarmanninn með sparki í höfuð!!! Hvað segir þetta um alþingi, hvað finnst þér? Skoðun

15:33
Ég er að fara að kaupa mér þrívíddarkort í tölvuna. Áður en ég geri það þá datt mér í hug að spyrja hvort einhver forfallinn leikjaspilari væri að selja TNT2-inn sinn eða voodoo3. Ef svo er hafðu samband. Stefnan er samt að kaupa kortið í gegnum netið og mér var bent á snilldar síðu um daginn, Pricewatch.com. Þessi síða býður upp á leit að tölvuíhlutum, hún finnur hvar þeir eru ódýrastir og þú getur pantað þaðan.

11:19
Ég var rétt áðan að panta mér að borða. Ég pantaði mér djúpsteiktan fisk. Pirringur dagsins er að flestum í dag finnst fiskur vondur (hr. "$"). Hvað er málið. Fiskur er eitt það besta sem hægt er að matreiða. Sendu mér endilega fiskiskoðun ef þú átt svoleiðis

11:00
Það er rigning í dag. Þegar er rigning þá er hægt að hugsa til mín vegna þess að þá hef ég ekkert að gera what so ever. Ég mætti í vinnuna kl 07:58 í morgun, fór inn á kaffistofu og spilaði skák til kl 09:30. Brill. Fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna á malbikunarstöðinni höfða, á rannsóknarstofunni. Þess á milli er að sjálfsögðu nóg að gera en það er þó almennt viðurkennt í þessari vinnu að ef það er ekkert að gera þá þarf fólk ekki að þykjast vera að vinna.


gestir síðan 9.apríl 2000

gamalt jamms

Powered by Blogger