[h?
oba@hi.is


[.bloggerar]
Nagportal



[.erlent)
Babetesti?>
highindustrial.com



[.snilld)
Nagportal

Kíktu á hrekkjusvín.is, eina lífræna rafritið á Íslandi

23:59 |

Það er kannski við hæfi að byrja á léttari málum. Áramótin/aldamótin/árþúsundamótin voru bara nokkuð nett. Það er að segja þau voru ekki jafn mikil vonbrigði og ég hafði verið að búa mig undir. Kvöldið var byrjaði á léttum blundi og síðan góðri máltíð. Eftir máltiðina var haldið til fjölskylduvinar sem að nýlega verslaði sér bjórverksmiðju, mér til mikillar ánægju. Þar var ég látinn skjóta upp miklu magni flugelda. Eftir það var haldið í áramóta/aldamóta/árþúsundamóta gleði þeirra oz.com manna í gamla aðalbókasafninu. Góð stemming þar og mikið af fallegu kvennfólk og ókeypis víni. Eftir það var haldið í einkapartí í Fossvoginum hjá Gunnari Magnúsi vini mínum. Partýið var reyndar merkilegt fyrir þær sakir að allir þar inni, nema kannski þrír karlmenn, voru á föstu!

Annað mál á dagskrá er nett tilkynning þess efnis að ég er hættur að blogga.Undanfarin misseri hef ég haft minni og minni áhuga á að bera sálu mína á Internetinu. Það er ekki bara það að ég sé að gera það á Internetinu heldur það að mér finnst vefleiðara samfélagið hafa breyst. Breyst á neikvæðan máta að mínu mati. Ég tek ekki fyrir það að ég muni skrifa á heimasíðu mína í framtíðinni. Hvort að það verði á íslensku eða ensku veit ég ekki. Það sem að ég veit er að ég þarf pásu frá þessu samfélagi.
05:55 |


ArnarAr segir:

„Jólin eru kannski skilgreiningin á geðveiki. Í dag fór ég upp í Grafarvog og þar er einmitt kirkjugarður. Fyrir utan að bíða í röð í hálftíma til að komast upp í Grafarvoginn, þá er þykkt mengunarský yfir hverfinu, vegna þess geysilega magns af kertum sem brennd eru á leiðum fyrrum landsmanna. Er ekki allt í lagi heima hjá þessu fólki? Hefur fólk ekkert betra við tímann að gera en að heimsækja staðinn þar sem líkami einhvers ættingja var settur til að rotna? Lögreglan stóð ráðþrota yfir þessari geysilegu umferð þarna og klóraði sér í hausnum lengi vel. Auðvitað er ekkert sem segir að lögreglan sé með hærri greindarvísitölu en gerist og gengur og þessi geðveiki í kringum kirkjugarðana sýnir kannski ágætlega hvað fólk er klikkað.“

Það er greinilega ekki í lagi heima hjá mér.

20:45 |


Gleðilega hátíð
17:22 |

Jæja, ég ætla að byrja á því að þakka Sigfúsi tæknitrölli fyrir að búa til Þýðandann.
Mál tvö er pistill ArnarsAr um íslenska karlmenn. Eins og er ég staddur á Ítalíu og eiga karlmenn þar víst að vera draumur hvers kvennmanns. Eftir að hafa spurt nokkrar vinkonur mínar útí þessi mál kom í ljos að það eru ekki ítölsku karlmennirnir sem að rokka. Hverjir þá spurði ég með bros á vör. Jú, jú, náttúrulega var það Skandinavía sem að sigraði enn á ný. Munurinn var helst að ítölsku drengirnir áttu það til að koma fram við stúlkurnar eins og þeir ættu þær og sídan til að toppa það þá daðra þeir við allt kvennfólk sem að verður á vegi þeirra og halda framhjá við hvert tækifæri.

14:14 |

Nú er hægt að líta á myndir af mér í Mílan á veraldarvefnum.
11:58 |

Já, ég veit að það er allt of langt á milli færsla hjá mér en það er bara mikið að gera hjá mér. Ég er t.d. að vinna að fjórum hópverkefnum sem að eru: greining á öllum helstu löndum Asíu og hönnum viðskiptaáætlunar fyrir farsímafyrirtæki sem að vill fara inn á þessa markaði, greining á þróun Bluetooth sem alþjóða tæknistaðalls, greining og framtíðar áætlunar gerð fyrir StarMedia sem er Strik.is Suður-Ameríku og síðan greining á ítalska víniðnaðinum. Og síðan þarf ég auðvitað að taka nokkur próf. Annars er bara stuð hér á Ítalíu!
14:06 |

Vá, hvað það var skrýtið að lesa mbl.is í dag. Ég vissi reyndar að Einar Örn var horfinn. En sjokkið var að sjá að öðlingsdrengurinn (fram að þessu) Atli Helgason drap hann.
Ég þekkti báða aðila og á bara hreint út sagt bágt með að trúa þessu.
Einar Örn var skemmtilegur gaur. Uppalinn í Víking og þjálfaði t.d. mig og marga af vinum mínum á mínum yngri árum.
Atli Helgason var frábær íþróttamaður og góður félagi á gullaldar ári Víkings (1991).
Það að Atli hafi gert þetta sýnir bara hversu illa skemmt fólk getur orðið af fíkniefnum!
12:29 |

Sumir halda örugglega að ég hafi verið voðalega latur í þessari tilraun minni til að byrja að ad blogga aftur. Það er ekki alveg 100% satt því að það er ekki beint einfalt ad komast á netið hér a Ítalíu. T.d. þarf ég yfirleitt ad standa í röd í yfir 45 mínútur til a_komast í tölvur. Og t.d. núna fékk ég aðeins aðgang ad 20 mínútna tölvupóst tékk tölvu. Og núna er verið ad henda mér út.

Meira seinna!
11:46 |


Frá Mílanó er allt gott að frétta. Mikið drukkið, borðað og djammað. Fullt af skiptinemum, um 150 stykki, og fullt af fallegu kvennfólki.
13:34 |
Jæja þá er maður byrjaður aftur.
13:32 |

?nota blogger.com og blogger er snilldargr?