Vefhugleiðingar
Kíktu á hrekkjusvín.is, eina lífræna rafritið á Íslandi
|gamalt|
Mér líkar ekki við gervigras!
10:48 | póstur | Ø

Síðasti vinnudagurinn. Ekki laust við það að það sé svolítið skrítið. Skólinn byrjaði reyndar á mánudaginn en honum verður ekki sinnt af alvöru fyrr en eftir þessa viku. Hvurnig í fjandanum mun ég komast af án þess að fá mánaðalegt launaumslag!!?? Ætli ég fari bara ekki að spila Quake með bekkjarfélögunum. Það kostar jú ekkert (nema tíma).
14:29 | póstur | Ø

Súrt útvarpsefni! Tvíhöfði í paintball!
10:52 | póstur | Ø

Plögg í gangi! Eins og glöggir menn sjá þá er ég byrjaður að auglýsa Hrekkjusvín.is. Vissir þú að Hrekkjusvín.is er EINA lífræna rafritið á Íslandi!!?
09:59 | póstur | Ø

Tjah, en Freyzi eins og þú manst örugglega þá vann Fylkir Ólafsfirðingana 7-1 fyrir norðan. Þú ert nú mikið fyrir tölur og tölfræði. kr hefur unnið Leiftur einu sinni og gert einu sinni jafntefli. Markatalan úr þessu leikjum er 1-0 fyrir kr. Fylkir hefur einnig unnið þá einu sinni og gert eitt jafntefli. Markatalan 8-2. Hreinu smeinu!! Híhí!
13:30 | póstur | Ø

Jeeeeeeeeeeeezzzzzzzzzzzzz!!!!!!!!! kr gerði bara jafntefli við Leiftur í gær!! Gríðarlega góðar fréttir og vænti ég þess að allir séu sáttir við þá niðurstöðu. Reyndar finnst mér að kr-ingar hafi fengið fullmörg stig út úr leiknum. Allaveganna, þá eru mínir menn, FYLKIR, í góðum málum og nú vönum við öll að þeir eigi eftir að rúlla þessu upp! Ahahaha gátu ekki unnið Leiftur!!
09:02 | póstur | Ø

Var að uppgötva snilldar hljómsveit. Sjálfsagt er ég á eftir mörgum en mér er slétt sama. Hljómsveitin heitir Fu Manchu og er þvílíkt eðalband að ég er skínandi glaður með þessa uppgötvun. Hverjum er það að þakka að hljómsveitin var uppgötvuð? Jú, það er "óvini" allra tónlistarmanna og útgefanda að þakka, Napster. Þökk sé þessum "óvini" er ég á leið út í búð sem allra fyrst að kaupa mér plöturnar In Search Of.. og King Of The Road. Vonandi fær Napsterinn að lifa!
11:21 | póstur | Ø

Ég er farinn!!!
18:03 | póstur | Ø

Ég er saddur!!
13:31 | póstur | Ø

Ég er svangur!
10:52 | póstur | Ø

Einhverra hluta vegna er bloggerinn búinn að gefa upp öndina á síðunni minni. Skildi það vera vegna smávægilegra breytinga á template-inu?

Fór með köttinn á dýraspítalann í gær til að láta líta á sár sem hann hafði fengið í andliti. Það var heljarinnar stuð!! Mætti kl. hálf sex og fékk að sitja með hann í tvo tíma í fanginu innan um hamstra, hunda og aðra ketti áður en kom að mér. Þarf að gera meira af þessu. Allt í lagi með kisa hins vegar. Gott mál!

Ástin er búinn að jarða sinn riðil í utandeildinni. Á sunnudeginum voru Miniraketturnar teknar í bakaríið og slátraðar 12-0.
Gaman það.

Uuuuhhh helgin.... Föstudagur: Labbitúr með vinnufélögum og farið í bústað á Þingvöllum um kveldið. Laugardagur: Labbað á Hvalfell, djammað um kveldið. Sunnudagur: Kappleikur með Ást, klettaklifur í Valshamri við Hvalfjörð með Halla

Þar hafið þið það!
08:36 | póstur | Ø

Vefleiðarar keppast við að tilkynna afmælið sitt á síðum sínum og restin að óska þeim til hamingju.
Ég hef þetta á svipuðum nótum.

Í dag á mamma afmæli (..og reyndar líka Rvk en það er miklu ómerkilegra). Mikil gleði hér á ferð!!
12:02 | póstur | Ø

Til hamingju með króann Tommi

Djöfull er ég þreyttur!!
08:40 | póstur | Ø

Til hamingju með króann 08:38 | póstur | Ø

Arnar leiðréttir mig fyrir að hafa leiðrétt sig. Ég vanmat algerlega Arnar og biðst ég afsökunnar. Hefði mátt vita að hann vissi þetta! Sorry boy!

Ágúst fær þakkir fyrir að skella Dirty Harry: Magnum Force á síðuna sína. Nú veit ég hvaða mynd verður tekinn næst!
10:34 | póstur | Ø

Heimsóknum er strax tekið að fjölga!
17:24 | póstur | Ø

Bara að tékka hvort ég sé orðinn hluti af fjölskyldu Naggsins.
16:50 | póstur | Ø

Geiri er kominn í kaffi til mín!!!!!! Gleðin er gríðarleg! Skemmtilegast finnst mér þó að hann skuli vera nakinn.
11:13 | póstur | Ø

Já og meðan ég man! Buttercup er bjakk! "Til hvers að lifa hér án þín, til hvers að far'á fætur!!!!!!"......o.s.frv! Ég vísa bara í færslu Geira. Hann lýsir þessur ágætlega.
08:40 | póstur | Ø

Verð bara aðeins að fá að leiðrétta hann Arnar. Víst er það rétt að Bruce Dickinson hætti í Iron Maiden og hóf sóloferil! En nú er hann AFTUR byrjaður í Iron Maiden og með honum gamli gítarleikarinn Adrian Smith. Gömlu kallarnir eru nýbúnir að gefa út plötu sem heitir Brave New World þar sem þeir rokka eins og þeir gerðu í gamla daga!
Þeir sem sáu þá á Hróarskeldu (eins og ég) geta votta að þeir hafa engu gleymt.
Set kannski seinna í dag inn lögin Brave New World og Wickerman fyrir þá sem hafa áhuga.

Up the Irons!
08:36 | póstur | Ø

Ég held að Geiri sé að klikka! Þetta líst mér ekki á!

Meðan ég man. Mynd helgarinnar var Dirty Harry með Clint Eastwood. Snilldarmynd! Spurning í hvaða flokki Ágúst setur hana? En Geir? Örugglega í snilldarflokkinn!
16:54 | póstur | Ø

Geir er ekki ennþá kominn!! Er hann að klikka?
14:17 | póstur | Ø

Geiri er búinn að lofa að kíkja í kaffi í dag. Mun hann gera það? Fylgist spennt með!
10:39 | póstur | Ø

Það fyrsta sem ég sá þegar ég mætti til vinnu og tók þetta hefðbundna 10 mínútna vefvafur var að Hrekkjusvínin er komin í loftið. Glæsilegt það!! Nú er bara málið að setjast niður, fá innblástur og láta birta grein eftir sig.

Jez, Fjölnir "He's a fox!!!"

Ástin hefur sigrað sinn riðil í utandeildinni. Landsteinar fengu að kenna á því í leik sem endaði 6-4. Ekki besti leikur minna manna.

Já, það er margt sem gerist um helgar!
08:59 | póstur | Ø

Powered by Blogger


heimsóknir síðan 26. maí 2000