Hæ hó jibbíjey...það er kominn 17. júní! Ekki að öllum hér sé ekki nákvæmlega sama, fyrir utan Íslendingafélagið sem er með grillveislu niðri við á í sólinni. En þar sem ég er að fara í próf á morgun og á eftir að lesa nokkra kafla þá kemst ég ekki þangað :-(
Annars tók ég fyrsta prófið á föstudaginn sem gekk bara eins og við var að búast sossum. Svo er próf númer tvö á mánudaginn og þriðja og síðasta á miðvikudaginn. Og enn og aftur er ég kominn með nýtt plan yfir það sem ég ætla að gera áður en ég fer heim. Þetta er líklega númer sjö... hehe Guðrún Katrín Solluvinkona ætlar að koma til Brisbane á þriðjudaginn, og við ætlum að hittast og gera eitthvað skemmtilegt :-)) Þannig að Sydney fær að bíða í nokkra daga.
En annars er orðið mjög rólegt hér á campusnum, og sérstaklega í íbúðinni minni. Margir eru búnir með prófin og verkefnin, og eru því farnir heim eða eitthvert á flakk. Og þeir sem eftir eru sitja yfir skruddunum. Nú eru tvö herbergi orðin auð í íbúðinni minni, og við því bara fimm eftir - en eiginlega bara fjögur því einn kemur bara heim til að sofa og sést lítið meir.
Svo er líka orðið skítkalt hérna (enda miður vetur), því það blæs af suðri sem hér þýðir að sjálfsögðu kaldur vindur. Það er næturfrost í "uppsveitum" landsins, en hér við ströndina eru tæp tuttugu stig á daginn, en er nær 10 á nóttunni og úúúúúúú hvað það er kalt að fara fram úr á morgnanna! Og þetta er ekki djók né kaldhæðni!!
En tíminn líður, bókin bíður - verð að þjóta!