'I dag er gaman að vera til. Þetta er í ábyggilega sjötta skiptið sem ég segi þetta en svona er nú lífið, sífelldar endurtekningar. Við erum hérna heima hjá Gauta og það er merkilegt að upplifa lífið frá öðrum sjónarhornum en frá þeim sjónarhóli sem maður þekkir. Donni sakar mig um nástöðu (þá á ég við sjónarhorn/sjónarhól), en það verður að duga sem stendur. Ég bið að heilsa í bili.5/13/2000 12:10:09 AM | #
posted by Þórhallur Ágústsson 5/13/2000 12:10:09 AM
Loksins er baráttunni lokið, og ekki víst hversu margir fallnir og særðir liggja í valnum. Fjögur próf og við verðum bara að bíða og vona. Allavega, þá er ég búinn og sumarið getur tekið við með sínu áhyggjuleysi. Stærðfræðin rak lestina og reyndar var það vinur okkar Kuhn-tucker sem sendi mér skýr skilaboð í lok prófsins. ,,Þórhallur, þú átt að snúa þér að e-u öðru en að reikna stærðræði". Ég held ég fylgi þessum frómu fyrirmælum. Nú ætla ég ekki að tala meira um skóla, en snúa mér að merkilegri málum.5/12/2000 11:07:41 AM | #
Nýr verndari HamarsinsUm nýliðna helgi átti sér stað merkilegur atburður í sögu Hamarsins og má reyndar með fullri reisn segja að átt hafi sér stað vatnaskil í starfi Hamarsins, því á laugardaginn gerðist hinn heimsfrægi markaskorari Ian Rush verndari Hamarsins, þegar leiðir hans og okkar eigin markaskorara Ellíasar E. Elíassonar lágu saman. Elías kynnti hr. Rush fyrir starfsemi félagsins og síðan áttu sér stað umræður um stöðuna á vellinum sem er báðum þessum snillingum mest hugleikin. Að þessu loknu kynnti Elías honum fyrir þeirri miklu umgjörð sem nafn Hamarsins er reist á. Þótti Ian Rush mikið til þess komið, þótt hann sé ýmsu góðu vanur frá eigin ferli sem atvinnumaður. Þeir skildu svo eftir þennan skemmtilega og árangursríka fund, sem mun héðan í frá tengja nafn Ian Rush órjúfanlegum böndum við Hamarinn. Það er því ekki nema von að Hamarsmenn hafi yfir enn einum stóráfanganum að gleðjast.
Þó er lífið ekki einn dans á rósum og það hafa Hamarsmenn fengið að kynnast því sorglegar fréttir hafa borist úr herbúðum þeirra þess efnis að Sigujón V. Eiríksson eigi við meiðsli að stríða og muni ekki leika með Hamrinum í sumar sökum uppskurðar sem hann þarf að gangast undir. Ekki er þó vitað með vissu hversu lengi hann verður frá en framkvæmdastjóri liðsins er bjartsýnn.
Og nú þegar menn hafa losað sig við prófa- og skóla möruna þá er kominn tími til að fagna vorboðunum hverjum á fætur öðrum, annað kvöld ætlum við að horfa á júróvisjón saman og það er gaman.
posted by Þórhallur Ágústsson 5/12/2000 11:07:41 AM
góðan daginn5/11/2000 8:28:59 AM | #
posted by Þórhallur Ágústsson 5/11/2000 8:28:59 AM
Lítið hefur verið á döfinni á minni himnesku heimasíðu undanfarið vegna anna. Það er þó ekki þar með sagt að ekkert hafi á5/8/2000 8:48:09 PM | #
daga mína drifið þennan tíma, því fer fjarri.
Ég er í prófum
Ég er loksins kominn með sumarvinnu
Ég er Jesús í hjáverkum
Hamarinn kemur, Hamarinn er Hamarinn lifir.
Eitt hefur verið að pirra mig undanfarið afar mikið. Mér þykir leitt að nefna það en finnst ég verða að gera það. Þó svo ég
nefni þetta þá er ekki svo að ég hafi óbeit af öllu batteríinu í heild sinni, af og frá. Málið er nefninlega það að ég er búinn að
vera með júróvísíon lagið á heilanum í all langan tíma. Þetta gerist annað slagið, að ég fæ svona lög á heilann og þá er
ekkert sem heitir, þau festast og eru!!!! Ég man t.d. einu sinni þegar ég var í menntaskóla að þá fékk ég lagið ,,Litir" á
heilann svo lengi að ég íhugaði það alvarlega að leita til læknis. Ég vaknaði á hverjum morgni með upphafssetningu hins
samkynhneigða dimmraddaða trúbadors og MORF'IS trölls Kristínar (ég held Pétursdóttir) ,,Ég sé í lífinu liti", svo sem alveg
ágætis lag, en þegar þú ert búinn að hlusta á það svo dögum og vikum skiptir trekk í trekk þá getur það fengið verulega á
sálartetrið. Mér líður næstum því eins í dag, ekki eins illa þó en samt ekki vel. Annað hvort er það ,, tell mí tell mí vons, tell
mí tvæs, tell mí ðer is no komprómæs, víll ví túgeðer oll ðe tæm" eða ,,viþ jú bæ mæ sæd vír on a róler kóster ræd", nú eða
þá ,,æ dónt nó if its fakt or fiksjon, böt æm sjor víll meik a ræt disisjón". Ég veit að þau Einar og Telma koma til meða að
verða landi og þjóð til sóma en samt fær þetta mig til að hugsa hvers eiga jaðareinstaklingar eins og ég sem erum fljótir að
læra texta að gjalda þegar svona viðburðir eru í nánd (þá á ég við jólaplötuflóðið, júsóvisjón eða eitthvað annað)? Annað
dæmi sem ég man eftir í fljótu bragði var þegar Strákarnir okkar voru að gera það gott Japan ´97. Þá var HM í Kumamoto
og ég man enn þá eftir ,,lagi keppninnar" eins og ég hefði heyrt það í gær. ,,Von boll von vörld, ví ken træ tú gró end lörn,
(svo kom eitthvað sem ég ekki man) böt to bí ðe best túgeðer" Virkilega grípandi hjá Japönunum. Önnur lög eru t.d. Ðe
living deilæts með a-ha, dónt drím its óver með Crowded house og feiri og fleiri. En júróvision kemur og ég get ekki beðið
því það verður gaman hjá mér og mínum vinum þá því þetta er einn af hápunktum skemmtanalífs Hamarsmanna og þeirra
fylgiliðs. Gaman verður þá.
En svo við víkjum að fréttum af Hamrinum þá hafa æfingar legið niðri vegna anna upp á síðkastið. Þó voru teknar nokkrar
æfingar um páskana þar sem vel kom íljós hvers konar formi Hamarsmenn eru í. Ekki liggja fyrir leikskýrslur um leiki sem
leiknir voru en þó má fullvissa aðdáendur hamarsins um það að ekki munum við valda neinum vonbrigðum á sumri komandi.Stórfrétt sem barst okkur Hamarsmönnum rétt fyrir páska var sú að í kjölfar tilkynningar um þátttöku Hunangstunglsins í
utandeildinni á sumri komandi þá hafa þeir verið að safna að sér mannskap svo um munar. Þannig er Gylfi kópavogsbúi
genginn í Hamarinn einhverGústi hrausti (þá væntanlega á mælikvarða Tunglara) og síðast sjálfur Mr. Lee tvíburabróðir
okkar eina Jakobs Valdimars. Þetta þykir okkur í Hamnarshorninu afar hjákátlegt og bera vott um mikla örvæntingu. Því
eins og allir vita þá hefur mr. Lee aldrei getað nokkuð fyrir sér í knattspyrnu. Hæfileikar þeirra tvíburabræðra til tuðrusparks
er einfaldlega ekki jafnt skipt, eða öllu heldur þeim er alls ekki skipt. Jakob okkar kæri Hamarsmaður ber höfuð og herðar
yfir litla bróður og það vita allir sem vilja. En lengi má mennina reyna og við sjáum hvernig fer hjá Tunglurum.
Önnur frétt sem snertir okkur Hamrsmenn er það að óstaðfestar fregnir herma að lánssamningur sé í burðarliðnum milli
Hamarsins og ónefnts utandeildarliðs um lán á Guðmundi Gauta Marteinssyni í sumar. Þetta eru þó aðeins sögusagnir, en
ekki ólíklegar þar sem GGM hefur allaburði til að gera góða hluti í utandeildinni.
Ja, fyrir utan þetta þá er ansi tíðindalaust af vesturvígstöðvunum.
posted by Þórhallur Ágústsson 5/8/2000 8:48:09 PM
Lítið hefur verið á döfinni á minni himnesku heimasíðu undanfarið vegna anna. Það er þó ekki þar með sagt að ekkert hafi á daga mína drifið þennan tíma, því fer fjarri.5/8/2000 8:46:34 PM | #
Ég er í prófum
Ég er loksins kominn með sumarvinnu
Ég er Jesús í hjáverkum
Hamarinn kemur, Hamarinn er Hamarinn lifir.
Eitt hefur verið að pirra mig undanfarið afar mikið. Mér þykir leitt að nefna það en finnst ég verða að gera það. Þó svo ég nefni þetta þá er ekki svo að ég hafi óbeit af öllu batteríinu í heild sinni, af og frá. Málið er nefninlega það að ég er búinn að vera með júróvísíon lagið á heilanum í all langan tíma. Þetta gerist annað slagið, að ég fæ svona lög á heilann og þá er ekkert sem heitir, þau festast og eru!!!! Ég man t.d. einu sinni þegar ég var í menntaskóla að þá fékk ég lagið ,,Litir" á heilann svo lengi að ég íhugaði það alvarlega að leita til læknis. Ég vaknaði á hverjum morgni með upphafssetningu hins samkynhneigða dimmraddaða trúbadors og MORF'IS trölls Kristínar (ég held Pétursdóttir) ,,Ég sé í lífinu liti", svo sem alveg ágætis lag, en þegar þú ert búinn að hlusta á það svo dögum og vikum skiptir trekk í trekk þá getur það fengið verulega á sálartetrið. Mér líður næstum því eins í dag, ekki eins illa þó en samt ekki vel. Annað hvort er það ,, tell mí tell mí vons, tell mí tvæs, tell mí ðer is no komprómæs, víll ví túgeðer oll ðe tæm" eða ,,viþ jú bæ mæ sæd vír on a róler kóster ræd", nú eða þá ,,æ dónt nó if its fakt or fiksjon, böt æm sjor víll meik a ræt disisjón". Ég veit að þau Einar og Telma koma til meða að verða landi og þjóð til sóma en samt fær þetta mig til að hugsa hvers eiga jaðareinstaklingar eins og ég sem erum fljótir að læra texta að gjalda þegar svona viðburðir eru í nánd (þá á ég við jólaplötuflóðið, júsóvisjón eða eitthvað annað)? Annað dæmi sem ég man eftir í fljótu bragði var þegar Strákarnir okkar voru að gera það gott Japan ´97. Þá var HM í Kumamoto og ég man enn þá eftir ,,lagi keppninnar" eins og ég hefði heyrt það í gær. ,,Von boll von vörld, ví ken træ tú gró end lörn, (svo kom eitthvað sem ég ekki man) böt to bí ðe best túgeðer" Virkilega grípandi hjá Japönunum. Önnur lög eru t.d. Ðe living deilæts með a-ha, dónt drím its óver með Crowded house og feiri og fleiri. En júróvision kemur og ég get ekki beðið því það verður gaman hjá mér og mínum vinum þá því þetta er einn af hápunktum skemmtanalífs Hamarsmanna og þeirra fylgiliðs. Gaman verður þá.
En svo við víkjum að fréttum af Hamrinum þá hafa æfingar legið niðri vegna anna upp á síðkastið. Þó voru teknar nokkrar æfingar um páskana þar sem vel kom íljós hvers konar formi Hamarsmenn eru í. Ekki liggja fyrir leikskýrslur um leiki sem leiknir voru en þó má fullvissa aðdáendur hamarsins um það að ekki munum við valda neinum vonbrigðum á sumri komandi.
Stórfrétt sem barst okkur Hamarsmönnum rétt fyrir páska var sú að í kjölfar tilkynningar um þátttöku Hunangstunglsins í utandeildinni á sumri komandi þá hafa þeir verið að safna að sér mannskap svo um munar. Þannig er Gylfi kópavogsbúi genginn í Hamarinn einhverGústi hrausti (þá væntanlega á mælikvarða Tunglara) og síðast sjálfur Mr. Lee tvíburabróðir okkar eina Jakobs Valdimars. Þetta þykir okkur í Hamnarshorninu afar hjákátlegt og bera vott um mikla örvæntingu. Því eins og allir vita þá hefur mr. Lee aldrei getað nokkuð fyrir sér í knattspyrnu. Hæfileikar þeirra tvíburabræðra til tuðrusparks er einfaldlega ekki jafnt skipt, eða öllu heldur þeim er alls ekki skipt. Jakob okkar kæri Hamarsmaður ber höfuð og herðar yfir litla bróður og það vita allir sem vilja. En lengi má mennina reyna og við sjáum hvernig fer hjá Tunglurum.
Önnur frétt sem snertir okkur Hamrsmenn er það að óstaðfestar fregnir herma að lánssamningur sé í burðarliðnum milli Hamarsins og ónefnts utandeildarliðs um lán á Guðmundi Gauta Marteinssyni í sumar. Þetta eru þó aðeins sögusagnir, en ekki ólíklegar þar sem GGM hefur allaburði til að gera góða hluti í utandeildinni.
Ja, fyrir utan þetta þá er ansi tíðindalaust af vesturvígstöðvunum.
posted by Þórhallur Ágústsson 5/8/2000 8:46:34 PM
Þar sem ég sit hér á Bókhlöðunni á Laugardagseftirmiðdegi og aðeins tíu mínútur í lokun, þá spyr ég sjálfan mig, eru tíu mín. í lokun hjá sjálfum mér eða kannski minna. Hvenær vitum við hversu mikið er eftir? Kannski kemur slæm frammistaða í prófi eða þaðan af ómerkilegra manni til að hugsa um lífið og tilveruna. Hvað er maður að hanga yfir bókum á blómlegustu árum ævi sinnar þegar hægt er að gera svo margt. En vorið er komið og við höfum að minnsta kosti ávallt Hamarinn til að hugga okkur við.5/6/2000 4:50:17 PM | #
posted by Þórhallur Ágústsson 5/6/2000 4:50:17 PM
Ég var að velta því fyrir mér í gær, hversu mikið viðbrögð í kvikmyndum eru ýkt. Ekki svo að skilja að mér finnist endilega allur tilfinningaskalinn settur í þriðja veldi, heldur miklu frekar það að flestar aðstæður sem eru sýndar í myndunum eru aðstæður sem ég, og þú lesandi góður þekkjum ekki. Hvernig myndi ég t.d. bregðast við ef ég vissi um 400 miljónir ísl. króna og fauti einn stór og mikill miðaði byssu að mér og hótaði að taka í gikkinn ef ég segði ekki hvar peningarnir væru. ,,Segðu mér hvar peningarnir eru eða ég sendi þig á vit forfeðra þinna". Í þessari stöðu gæti ég gert þrennt:4/18/2000 9:44:35 AM | #
1) Ég gæti sagt honum hvar peningarnir eru geymdir.
2) Ég gæti neitað að tala og þar með reynt á þolgæði kónans, þar eð hann hefur ekkert að gera við mig dauðan.
3) Ég gæti logið um hvar peningarnir eru. Þannig myndi ég losna við hann og fara síðan og sækja verðmætin.
Allir sjá að síðastnefndi möguleikinn er físilegastur. Með honum myndi ég losna við glæpamanninn og halda peningunum, það er augljóst. En hvernig stendur þá á því að alltaf þegar þessi staða kemur upp í bíó þá reynir fórnarlambið í lengstu lög að þegja um staðsetninguna en svo þegar öll sund virðast lokuð þá segir það sannleikann og þrjóturinn heldur burt kampakátur? Getur verið að það sé erfitt að segja ósatt með byssu otaða að manni? Eflaust. Kemst sá aðili í eitthvert tiltekið ástand þar sem hann getur ekki sagt ósatt? Kannski metur hann lífið meira en peninginn. Það má vel vera, en fyrst og fremst þá hefur hann gleymt því að ólíkindatólið hefur ekkert að gera við hann dauðann.
Þessari spurningu verður væntanlega ekki svarað með hugleiðingum eða dagdraumum og það jafnvel í þindarleysinu, en ég, Þórhallur þindarlausi uni mér eki hvíldar fyrr en hið rétta er komið í ljós. Þess vegna fagna ég öllum reynslusögum þar sem menn (eða konur) hafa kynnst því að vera miðað að byssu. Hvernig er tilfinningin? Gaman væri að vita.
posted by Þórhallur Ágústsson 4/18/2000 9:44:35 AM
Enn eitt æðið hefur gripið um sig í USA á sl. mánuðum. Æðið ber nafnið Elijan Gonsalez.4/14/2000 3:47:33 PM | #
Hvað gengur mönnum eiginlega til. Við getum reyndar falið okkur að vissu leyti á bak við það að Bandaríkjamenn eru bilaðir, en þegarMogginn sem aldrei lýgur og er málgagn allra landsmanna (nema á Mánudögum) tekur sig til og þekur forsíðu sína með þessari gengdarlausu vitleysu þá er eitthvað að.
posted by Þórhallur Ágústsson 4/14/2000 3:47:33 PM
Ég er að prófa og rannsaka nýjar uppfærsluleiðir á veraldarvefnum og það er nú það. Tunglarar (mínir svörnu óvinir) vita ekkert um bloggerinn, þ.a.l. er bloggerinn vinur Hamarsins. Bloggerinn er hið nýja vopn í höndum Hamarsmanna til að gera Tunglurum erfiðara fyrir í baráttu þeirra á ritvellinum.4/14/2000 11:25:46 AM | #
posted by Þórhallur Ágústsson 4/14/2000 11:25:46 AM
blogg, blogg, blogg seint að kveldi,4/14/2000 9:28:38 AM | #
blogg, blogg, blogg snemma að morgni
vetur sumar vor og haust
af blogginu verðum við öll svo hraust.
posted by Þórhallur Ágústsson 4/14/2000 9:28:38 AM
Loftið var lævi blandið og komið var að því að ýta úr vör enn einu farsælu tímabili Hamarsins.
Veðrið var eins og gera má ráð fyrir á þessum árstíma. Hamarsmenn voru mættir galvaskir til leiks í feiknarformi
eftir strangar æfingar allan sl. vetur og nú átti að láta karlana í tunglinu hafa það óþvegið.
Hinir yfirlýsingaglöðu "loonaticks" voru sjálfstraustið uppmálað en eins og oft áður þóttu lítil tengsl vera á milli
orða og athafna. Hamarsmenn mættu hins vegar einbeittir, þögulir og furðulega yfirvegaðir miðað við hvað í húfi var, en
ef vel var að gáð mátti sjá blik í augum og baráttuglampa. Greinilegt var að Hamarsmenn ætluðu að láta verkin tala.
Leikurinn fór fram á gervigrasinu í Garðabæ.
Þar sem
LEIKMENN HAMARSINS hafa ýmsum skyldum að gegna í samfélaginu þá
gátu ekki allir séð sér fært að mæta að þessu sinni, og sjaldan hefur hið fornkveðna sannast betur að maður komi í
manns stað. Einn lánsmaður var með Hamarsmönnum, Gylfi Kópavogsbúi og skilaði hann sínu erfiða hlutverki með sóma.
Það eru ekki allir knattspyrnumenn sem geta gengið inn í jafn vel smurða vél og Hamarsvélina án þess að þurfa nokkra
aðlögun. Þetta gerði Gylfi þó í gær. Aðrir sem héldu merki
HAMARSINS á lofti voru Þeir Jakob V. Hafstein,
Þórhallur Ágústsson
ogGuðmundur Gauti Marteinsson.
Leikurinn fór hægt af stað og greinilegur vorbragur var á báðum liðum. Það fór nokkur tími í að þreifa sig áfram
og liðin fóru hægt í allar sóknar aðgerðir. Hálfleikstölur gáfu þó til kynna að leikurinn stefndi aðeins í eina átt,
beinustu leið inn á háspennusvæði. Staðan í hálfleik var 4-5 fyrir Tunglara.
Hamarsmenn mættu hins vegar tvíefldir til síðari hálfleiks knúnir áfram af Gauta Marteins sem átti feykilega góðan leik.
Það má segja að hann hafi nánast verið alls staðar á vellinum, gerði stórkostlega hluti á báðum endum vallarins,
hreint óþreytandi vinna sem skilaði sínu. Hamarsmenn voru fljótir að breyta fyrrgreindum hálfleikstölum í 6-5, sér í hag.
En þá kom örlítil afturkippur í leik þeirra og Tunglarar eru of gott knattspyrnulið til að nýta sér ekki slíka vankanta.
Tunglarar tóku afgerandi forystu og höfðu menn að orði að nú væri leiknum lokið, einungis formsatriði fyrir meistarana
að klára hann. Hamarsmenn voru einfaldlega ósammála og með elju og dugnaði drifnir áfram af Þórhalli þindarlausa
sem stóð á milli stanganna náðu þeir að jafna 8-8. Báðum liðum tókst að skora sitt markið hvort og allt var á suðupunknti.
9-9. Í þessari stöðu skilja leiðir drengja og karlmenna. Það voru Hamarsmenn sem höfðu viljan, hinn andlega styrk og
getuna til að klára þennan leik. Þegar öllu sund virtust lokuð á tímabili gáfust þeir ekki upp.
Við í Hamarshorninu óskum hetjunum okkar til hamingju með frækilega frammistöðu, og þó mjótt hafi orðið á munum þá
segir máltækið "mjór er mikils vísir"
Jakob Hafstein var drífandi út leikinn, skoraði mikilvæg mörk og skilaði
hlutverki leikstjórnanda vel. Áður hefur verið minnst á þátt Gylfa Kópavogsbúa, hann var eitraður í framlínunni og ef
eitthvað þarf að gagnrýna hans leik þá mætti hann kannski nýta færi sín betur. Þórhallur stóð í marki og skilaði sínu
ágætlega og þá skal síðastan nefna mann leiksins Guðmund Gauta Marteinsson sem hefur fengið sína umfjöllun í þessum pistli
en hann kórónaði einmitt frammistöðu sína með því að skora sigurmark kvöldsins á glæsilegan hátt. Til hamingju Gauti!!
Leikmenn Hunangstunglsins geta borið höfuðið hátt þrátt fyrir tap. Þeir töpuðu einfaldlega fyrir betra liði í gær. Fyrir þá léku eftirtaldir Jóhannes Júlíus Hafstein,Jón Magnús Valberg, Ævar Örn Magnússon og Örn Viðar Grétarsson.
Þó geta þeir hins vegar spurt sig að því hvort framkoma þeirra að leik loknum hafi verið meisturum Árshátiðarmóts Hamarsins sæmandi, þar sem allar afsakanir sem hugsast gátu voru dregnar fram, allar nema sú augljósasta, Tunglarar stóðust einfaldlega ekki áhlaup frískra Hamarsmanna.
Talsvert er um rangar staðhæfingar á hinni nýju og jafnframt klénu heimasíðu hunangstunglsins þar sem vefþjónn þeirra tunglara fer alrangt með staðreyndir, nöfn og staðhæfingar. Tökum eitt í einu. Það er nokkuð borðliggjandi að Steðja, heimavöllur Hamarsins er aðeins heimavöllur Hamarsins. Hunangstunglið er ekki með sama heimavöll og Hamarinn. Höfum þetta á hreinu Tunglarar.
Í öðru lagi þá talar vefþjónn Tunglsins um þetta "Í vetur vann liðið Garðabær Open mótið sem haldið var á gervigrasinu í Garðabæ". Hvað gengur manninum eignlega til með þessum staðhæfingum? Veit hann kannski ekki að þetta var árshátíðarmót Hamarsins, eða var hann of upptekinn við að spila rassinn úr buxunum í annarri íþróttagrein á meðan?
Í þriðja lagi þá ætti tiltekinn aðili að vita það fullvel að allir leikmenn LEIKMENN HAMARSINS eru samningsbundnir til lífstíðar við félagið. Þetta hafa þeir gert af eigin frumkvæði, vegna tryggðar við málstaðinn. Þeir þekkja sína stöðu í lífinu. Jakob V. Hafstein er ekki, hefur aldrei og mun aldrei verða til sölu.
HAMARINN KEMUR, HAMARINN ER, HAMARINN LIFIR
VEFAPI FYRIR BÖRN OG AÐRA SNILLINGA SEM HAFA MISST AF UPPLÝSINGABYLTINGUNNI
Hér er ég og get ekki annað en
hamarshornið