Hugarflæði
Eitt og annað sem skiptir litlu máli fyrir flesta :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?
Tuesday, September 18, 2001
Ég hef starfað sem undanfari með bjögrunarsveit Ársæls síðastliðið ár (áhugaverður félagskapur það!) - Ég er að spá í að taka mér frí frá þeim í vetur. Ég ætla að setja önnur verkefni í forgang.


Monday, September 17, 2001
Enfermera = hjúkrun á Spænsku - (Alma Björnsdóttir)
Krankenpflege = hjúkrun á Þýsku! (Íslensk / Þýsk orðabók)


Mínar hugmyndir um lokaverkefni í hjúkrun eru að taka á sig breytta mynd og þróast í áhugaverða átt! (meira um það síðar)


Ég var á mjög fróðlegum og skemmtilegum fyrirlestri áðan. Þar var verið að ræða og skoða hugtakið "Evidence Based Nursing" eða "Gagnreynd hjúkrun"

Fyrirlesari: Hrund Sch. Thorsteinsson



Sunday, September 16, 2001
Menningar-hugarflæði
-As human beings, we have more similarities than differences with one another!
(Stanhope og Lancaster,2000)


Saturday, September 15, 2001
Nætur-hugarflæði
Ég tók aukavakt á Slysó í nótt sem er ekki frásögu færandi nema að þar spruttu ágætar umræður um hjúkrunarfræðina. Þar var verið að tala um "hefðir" innan hjúkrunar, að hlutir séu gerðir "svona" en ekki öðruvísi! Það er sorglegt að horfa upp á hjúkrunarfræðinga vinna sína vinnu ígrundaða á hefðum en ekki rannsóknum. Hvernig breytum við þessu? Jú til dæmis að passa mótast ekki inn í einhverja rútínu sem er á sumum deildum og horfa með gagnrýnum augum á vinnubrögð hvors annars.
Um daginn vorum við í skólanum að ræða fagmennsku í hjúkrun og þar kom upp sú hugmynd að hafa hjúkrunarfræðinámið 6 ár. Ég er fylgjandi þeirri hugmynd! -Þannig hækkar "standardinn" í hjúkrun og fólk verður faglegra í sínum vinnubrögðum :-)


Friday, September 14, 2001
Ófagleg vinnubrögð - misræmi!
-Ég hef spjallað við hjúkrunarfræðinga sem hafa útskrifast á síðustu árum frá hjúkrunarfræðideild HÍ. Þeir segja allir sömu söguna um lokaverkefni til B.S. prófs. Að það borgi sig að velja leiðbeinenda sem gefur háar einkunnir, þ.e. kennara sem eru gjafmildir á fyrstu- og ágætiseinkunn! Þetta finnst mér vera dapurlegt fyrir hjúkrunarfræðideild HÍ. Að nemendur velji leiðbeinenda eftir einkunnagjöf síðustu ára en ekki velja verkefni sem tengist áhuga hvers og eins! Ég geri mér grein fyrir því að einkunnagjöf er alltaf huglægt mat, sérstaklega verkefnavinna en það hlýtur að vera hægt að hafa samræmi milli leiðbeinenda um hvernig skuli gefið fyrir verkefnavinnu nemenda. Eins og þessu hefur verið líst fyrir mér af eldri nemum þá er þetta stór mínus fyrir þessa annars ágætu deild!


Thursday, September 13, 2001
# Er til sjúkleg árátta til hjúkrunar ("pathological caring")?? (Páll Biering)


Hugarflæði dagsins!
"Á íslandi er þjóðarsátt um að alkóhólismi sé sjúkdómur" (Þórarinn Tyrfingsson)


Þetta er flottasta "look" á bloggersíðu sem hef séð! - Áfram PDA


Wednesday, September 12, 2001
Ég var áðan að hjálpa til á nýliða kynningu Ársæls (var að kynna fjallamennsku). Það mættu um 15 manns! Ég hefði vilja sjá fleiri :-(


Tuesday, September 11, 2001
Þetta eru rosalegar fréttir núna frá USA - Maður er bara ekki að trúa þessu!


Nýtt slagorð hjá björgunarveitinni Ársæll: "Fram úr hófi hjálpsamur!" - nokkuð gott


Monday, September 10, 2001
Ég spóla enn fastur varðandi lokaverkefni til B.S. í hjúkrunarfræði :-)
-Ég fékk þó góðar ráðleggingar um helgina. Allar ábendingar og hugmyndir eru vel þegnar! (thorsj@hi.is)


Gaman að segja frá því að ég var að skrifa undir nýjan samning við Hjúkrunarfræðideild HÍ.


Nú er fyrsta vinnuhelgin með skólanum lokið :-) Og rann hún nokkuð ljúflega!


Thursday, September 06, 2001
Áðan var ég að vinna óþarfa vinnu :-( ----Stundum skil ég ekki fólk!


Hugarflæði dagsins - út frá mannfræðilegu sjónarhorni
Farið til fólksins og búið meðal þess.
Kannið hug þess og vilja og byggið á því sem fólkið hefur.
Þegar verkefninu lýkur og markmiðum er náð, hefur vel til tekist ef fólkið segir:
Við gerðum þetta sjálf.

(höf. óþekktur)
Fyrirlestur: Sigrún K. Barkardóttir



Wednesday, September 05, 2001
Ég sendi póst til RNpalm.com --- er að leita að fræðilegum heimildum um PDA. Það stóð ekki á svari, um 5 mín. síðar fékk ég yfir 400 heimildir :-)


Monday, September 03, 2001
Gaman að segja frá því að ég er orðinn aðstoðarmaður kennara! -Og mín bíður spennandi verkefni