:::::POTTURINN:::::

18.9.01

Vísindalegar útskýringar
Það veitir sko ekki af þessum vísindalegu útskýringum á dönsku tölunum. Sænsku er einfaldari. Sem betur fer.
vísun | 15:18 | Póstur

Aumingja Dísa
Árdís vinkona mín var lögð af stað til Bandaríkjana þegar árásirnar urðu á WTC. Hún er enn að þvælast í London og bíða eftir að komast í námið sitt í USA. Ef það er ekki fúlt!!!
vísun | 15:17 | Póstur

Pizzur
Í fyrra voru verkfræðinemar með samning við Pizzahúsið, árið áður höfðu þeir verið með samning við Dominos, sem vildu ekki endurnýja samninginn vegna þess að Háskólanemar pöntuðu Pizzur um alla borg, ekki bara í HÍ. Þá kom Pizzahúsið til bjargar. Það var þó eitt með þessa menn. Það voru pantaðar nokkrar pizzur á dag niður í VRII og þrátt fyrir að hafa komið þangað milljón sinnum virtust þeir aldrei vita hvar húsið var. Ef þeir fundu húsið gátu þeir engan vegin ráfað á 3 ársstofuna þangað sem flestar pizzurnar voru pantaðar. Vonandi að þeir læri þetta núna.
vísun | 15:04 | Póstur

Vaka
Ætli það sé tilviljun að ungir framsóknarmenn sé ekki með link til Vöku en þeir eru með link til Röskvu?
vísun | 14:57 | Póstur

Aumingja verkfræðingar
Þessi mynd er algjör snilld og lýsingin sem systir hans gefur honum. Æ Æ þessir verðandi verkfræðingar :)
vísun | 09:14 | Póstur

16.9.01

Leitartækni
Nú hefur sjálfvirk leitartækni verið að riðja sér rúms í öllum sköpuðum hlutum. Eitt íslensk fyrirtæki var að sérhæfa sig í því að staðsetja fólk í sundlaug. Þanning myndu myndavélar láta sundlaugarverðina vita ef einstaklingur væri hreyfingarlaus í einhvern ákveðin tíma og þá væri hægt að bjarga honum.
Það hafa verið margar sögur í kringum spreningarnar ein er sú að þeir hafi smyglað þessu inn með því að snúa hnífsblaðinu á rönd. Maður veltir fyrir sér hvort svona búnaður eins og sá sem íslenska tölvufyrirtækið var að hanna eigi ekki við í tollskoðun. Fólk flykkist í þúsundavís í gegnum þessi tæki og þrátt fyrir að tollverðirnir reyni sitt besta er alveg öruggt að athygli þeirra er ekki hundrað prósent í öllum tilfellum. Svona græja sem myndi gefa frá sér hljóð eða gera hring utan um hugsanlega bann hlut sem svo væri hægt að kanna betur. Þessi tækni gæti væntanlega einnig gefið þrívíddar könnun.
Er þessi tækni kannski komin í gagnið? Ég veit það ekki en ef ekki þá er kominn tími til að spá í það.
vísun | 07:45 | Póstur

11.9.01

Fréttir
Fréttaflutningur af þeim hörmulegu atburðum sem áttu sér stað í Ameríku er stanslaus hérna. Sjónvarpið ætlar að vera með útsendingar frá þessum atburðum í alla nótt. Því miður náum við ekki CNN en hins vegar er BBC world með útsendingar á ensku. Svo er danska eittan, og sænska þrjúan með útsendingar frá þessu.
vísun | 20:24 | Póstur

Nýir starfshættir
Ég verð að fagna nýjum starfsháttum hjá stjórn Vélinni. Í fyrra voru flest skilaboð send út í nafni formanns (forkonu?) Vélarinnar en ekki í nafni félagsins sjálfs. Núna hins vegar fara öll email út í nafni vélarinnar og undir eru nöfn allra í stjórninni. Þetta eru auðvitað eðlilegri vinnubrögð.
vísun | 20:21 | Póstur

9.9.01

Ups I did it again
Heimurinn er að verða viltaus út af þessari blessuðu slöngu sem Britney var með hálsinn á þessari MTV hátið.
vísun | 17:41 | Póstur

Harðir naglar
Fjölmiðlar víðsvegar um Evrópu eru að taka saman dauðsföll af völdum víagra. Í fréttum hérna í Svíþjóð er sagt frá því að 4 hafi dáið í Svíþjóð. Í Hollandi er sagt frá því að 17 hafi dáið þar í landi. 616 manns hafi látist í EU. Ætli þetta sé nákvæmlega skráð?
vísun | 17:40 | Póstur

Vinsældarlisti
Arnar var að velta fyrir sér hvert væri besta vefrit á Íslandi og komst að þeirri niðurstöðu að Andríki væri besta vefrit á Íslandi, ég er honum ósammála. Minn listi er eftirfarandi:
  • Deiglan. Deiglan er svo lang besta vefit á Íslandi. Pennarnir eru mjög lifandi og þrátt fyrir að vera flestir "hægri" þá er vefritið ekki mjög litað af því og það er langt frá því að vefritið sé einhvert pólitíkst vefrit. Nánast hver einasti pistill ritsins er hreinasta snilld. Ritstjórinn er búinn að safna til sín ferskutu pennum landsins.
  • Frelsi Frelsi á oft mjög góða pistla. Ólíkt Deiglunni þá lít ég ekki þangað inn á hverjum degi heldur svona meira einu sinni í viku. Þeir eru með pistla á hverjum degi en þeir eru mjög misjafnir og því er gott að líta reglulega inn og sjá hvað fram fer.
  • Andríki Það eru oft á tíðum ágætir pistlar en höfundar virðast oft ekki nenna að leggja þetta sem þarf til að klára dæmið.
  • KremlEina vinstra sinnaða vefritið sem eru með pistla sem eitthvað vit er í
Fyrst ég er byrjaður að lista upp svona rit þá er best að gera á hinn bóginn og koma með óvinsældarlistann
  • PólitíkÉg hef gert nokkrar tilraunir til að lesa þetta rit. Nánast í hvert skipti verð ég fyrir vonbrigðum. Finnst engum nema mér fölsuðu myndirnar þeirra barnalegar? Svo vindhögg á Frelsi og oftast ekki áhugaverðir pistlar.
  • Maddam Pistlarnir eru bara yfirleitt leiðinlegir.

vísun | 14:37 | Póstur

Jafnrétti
Mikið er ég sammála þessari grein. Ég fagna því að þessar flottu stelpur geri sem þarf til að vekja athygli á kvennaboltanum, ekki veitir af. Svona krumpukellingar eins og þessi hjá jafnréttisstofu sem vilja bara hjakkast í gamla farinu, ganga um með skilti og krefjast kynjakvóta í stað þess bara að grípa til aðgerða og koma sér á framfæri á eigin rammleik. Þessar stúlkur sýndu bara smá vegis af því sem þær höfðu og það dugði til að vekja athygli á þeim. Þannig hafa þessar stúlkur gert kvennréttindabaráttu á Íslandi sennilega meira gagn en kvenrembu krumpukerlingin, með alla kynjakvótana sína.
Fyrir mitt leyti verð ég að segja að þetta hafi hækkað ályt mitt á þessum stúlkum og næst þegar ég sé umfjöllun um stúlkurnar okkar ætla ég að fylgjast aðeins betur með en ég hef gert hingað til.
Að lokum Áfram Ísland.
vísun | 13:56 | Póstur

Vökufjör
Þrátt fyrir að það sé ágætt hérna úti saknar maður alltaf fjörsins heima þegar maður sér svona myndir
vísun | 13:49 | Póstur

8.9.01

Nýtt útlit
Þetta er nú samt ekki beint nýtt útlit. Hægri dálkurinn var hvort eð er kominn í köku og ég nota hann lítið. Ef ég hef min einhvern tíman í að gera þetta nýja útlit þá redda ég þessu en á meðan verður þetta að duga. Þetta er amk. ekki allt í köku.
vísun | 16:13 | Póstur

Bloggbuddy
Ég er auðvitað mjög hrifinn af Bloggbuddy en hann hefur gert tvennt af verkum. Ég fer sjaldnar á eigin síðu. Þetta þýðir að það eru oftar mistök. Hins vegar hef ég verið að pósta á vitlaus blogg. Þegar maður er með mörg í gagni er auðvelt að ruglast.
vísun | 16:12 | Póstur

7.9.01

Kosning á prest
Ég fékk í gær kjörseðla frá nokkrum flokkum þar sem mér var boðið að kjósa í kirkjuna mína hérna (ef ég væri meðlimur). Efstur á lista hjá hverjum flokki var prestur þeirar fylkingar. Ætli maður myndi ekki sækja kirkju ef presturinn væri frá vinstri grænum? Ætli stólræðan yrði eitthvað á þennan máta: "Við þökkum guði og Ögmundi fyrir vor daglega brauð?"
vísun | 16:19 | Póstur

Evrópurúta
Einn af þeim hlutum sem ég ætla að reyna að læra um hérna úti í Svíþjóð er um Evrópusambandið. Nú þegar er ég búinn að læra nokkra hluti en þrátt fyrir að matvara og annað hafi lækkað mikið hérna við tilkomu Evrópusambandsins er fólk almenn mjög neikvætt í garð þess. Ástæðan er samhæfðar reglur sem eiga að gilda um alla Evrópu en eiga ekki endilega við á öllum stöðum.
Ég á eftir að kanna hvort það séu ekki áhugaverðir fyrirlestrar um Evrópu og Evrópusambandið meða ég verð hérna.
vísun | 16:07 | Póstur

Nýtt útlit
Það er komið nýtt útlit á Vökuvefinn. Mikið líf hefur verið í kringum hann undanfarið.
vísun | 16:03 | Póstur

Uppsagnir og erfiðleikar
Núna eru farnar að koma fleiri fréttir um uppsagnir og erfiðleika hjá íslenskum tölvufyrirtækjum. Þetta þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart enda hefur gúrkutíðin verið slík innan þessarar fyrirtækja og þau hafa spent bogan það hátt og það hlaut að koma að þessu.
vísun | 15:59 | Póstur

4.9.01

Röflandi Gamalmenni
Sigurður A. Magnússon, rithöfundur lét víst gamnin geysa um Davíð í þætti hjá Sverri Stormsker. Hann vildi meina að menn myndu ekki muna eftir Davíð eftir 20 ár. Ef gamalmennið verður uppi eftir 20 ár verður það líklega enn ruglaðara en það er í dag. Hvað sem má segja um það sem Davíð hefur gert gott eða vont verður hans amk. minnst fyrir það hversu lengi hann sat og velsemdartímabilið með hann sat.
vísun | 16:38 | Póstur

Dot-com Layoff
Mér þótti hann Björgvin hitta naglan á höfuðið með grein sinni Má reka Má. Þótt ég þekki Má lítið þá hefur mér bara fundist þetta af þeim samskiptum sem við höfum átt.
vísun | 16:29 | Póstur

Skólinn byrjaður
Við Heiða erum núna búin að vera 2 daga í "alvöru" skólanum. I fyrsta tímanum kom í ljós að ég hafði af nokkru leyti tekið þann kúrs og vildi því finna annan og betri. Það hefur gegnið mjög hægt og hafa kúrsarnir annað hvort ekki hentað mér eða rekist á við hina. Ég er enn að vona að ég finni annan. Hinn kúrsinn er kenndur á ensku svo það var auðvelt. Heiða er búinn að mæta í báða sína kúrsa, báðir eru á sænsku með sænskar kennslubækur. Í fyrsta tímanum skildi hún lítið því kennnararnir töluðu mjög hratt.
vísun | 16:22 | Póstur





























Click Here!