|
threatcon delta Þegar ég mætti í vinnuna seinasta miðvikudag var komið á threatcon delta, þ.e. efsta varnarstig stöðvarinnar, í gangi með tilheyrandi sprengjuleit og tékki í hliðinu. Ekki var látið nægja að líta á ID-ið eins og vanalega heldur var gengið með hund í kringum hvern einasta bíl og einungis þeir sem voru á "essential personnel" lista fengu aðgang að stöðinni. Í hliðinu sjálfu var svo nákvæm sprengjuleit þar sem farið var með spegil í kringum bílinn til að sjá undir hann og leitað var í hverjum krók og kima bílsins, þ.á.m. í húddinu og öllum töskum og hólfum. Aldrei þessu vant voru hermennirnir mjög stressaðir og ekki bros að finna á annars léttlyndum gaurum. Eftir að hafa setið á Local flying standby til hádegis eyddi ég svo restinni af deginum í að fylla á gula plast tanka sem notaðir eru til að loka vegum og einnig til að útbúa vegatálma fyrir "checkpoints". Þess má einnig geta að í hvert sinn sem einhver nýr commander komst í málið breyttist eitthvað, bættust fleiri svona vegatálmar í hópinn eða þeir færðust til. Stressið var gjörsamlega að buga menn þó einnig mætti greina óvissu um gagnsemi þessa svo og almennar afleiðingar hryðjuverkanna. Þess má svo geta að á þessum stífu hömlum var svo slakað strax um kvöldið. Magnaðari fréttir hefur maður varla heyrt en þær sem bárust af hryðjuverkunum í USA í dag.. Maður var límdur við skjáinn í nokkra tíma og fylgdist með tvíburunum (twin towers) hrynja til jarðar. Fyrrum stolt New York búa og einar frægustu byggingar heims eru hrundar í annarri hryðjuverkaárásinni á örfáum árum. Pentagon í logum og allt í uppnámi í Bandaríkjunum svo ekki sé talað um hinn vestræna heim sem er lamaður við að hryðjuverkamenn gætu komið þessarri atburðarás af stað. Nú er enginn óhultur. Borgin sem aldrei sefur hvarf í rykmökkinn af hruni turnanna og er maður aðeins feginn því að þetta gerðist ekki þegar ég var staddur þarna fyrir nokkrum árum síðan. Undarleg tilfinning að sjá byggingu sem ég hef skoðað hátt og lágt verða fyrir hryðjuverkaárás sem slíkri. Gerir manni ljóst hversu yndislegt og öruggt það er að búa á Íslandi. Landi sem er ekki nógu fréttnæmt fyrir alvöru hryðjuverkamenn(Erpur Eyvindarson þar frátalinn að sjálfsögðu). Reyndar verður svo svolítið furðulegt að mæta í vinnuna á morgun þarsem öryggisráðstafanir verða með mesta móti vegna þessa og mun það eflaust koma manni enn betur í samband við alvarleika málsins. Ég vona að enginn leyfi sér að gleyma þessum hrikalegu atburðum. Ég vona einnig að enginn leyfi sér að láta svo stóran atburð í heimssögunni fara fram hjá sér án umhugsunar. Ég fékk þessa fínu spurningu í gær þegar Þorri komst í linuxinn í tölvunni minni: "Hvað hefur microsoft gert þér?" Þá er bara spurt á móti, þarf microsoft að gera mér eitthvað til að ég prófi eitthvað nýtt? Ekki endelis, sérsstaklega þar sem ég get gert allt í linux sem ég get gert í Windows og fæ ég linuxinn frían, auk þess sem ég slepp við endalaus bluescreen vandamál.. Nú er maður svo kominn með aðgang að tölvuveri 2. árs nema í rafmagninu og viti menn, þar brúka menn Linux af bestu lyst!
"Did you see that guy that played on this stage earlier today? You know, if he just moved around a little more he might just make it!" Sigurjón Kjartansson ber saman Leno og Letterman í grein á strik.is og hefur einnig ljáð máls á þessu í Tvíhöfða á svipuðum nótum nýlega. Hann er ekki mikið fyrir Leno, í fáum orðum sagt. Fyrir þá sem aðeins hafa séð örfáa þætti af Letterman þýðir lítið að tjónka í þessu samhengi, litlar líkur verða að teljast á því að þeir séu honum sammála. Ég horfi sjálfur nokkuð mikið á Jay Leno enda "monologið" oftast nokkuð gott hjá kallinum auk þess sem stundum detta inn gullmolar í viðtölunum sem þó snúast oft, og kannski of oft, um fjölskylduna og hvar viðkomandi var um seinustu helgi. Þetta hið sama má þó líka segja um David Letterman en ég minnist þess að hafa fylgst vel með honum þegar stöð 3 var og hét. Munurinn á þessum þáttum fellst þó einkum og sér í lagi í kraftinum. Letterman hefur einfaldlega meira edge. Til að fatta Letterman þarf meiri tíma og meiri hugsun heldur en Leno, og þar liggur hundurinn grafinn. Meðan Letterman leyfir sér að hunsa gesti sína á köflum lendir Leno frekar í andstæðu þess, þ.e. að gestirnir hunsi hann í samræðum sín á milli og þegar hann leyfir sér að gera gys að gestum sínum er það oftast á ósköp stríðnislegan hátt. Letterman hefur hins vegar þurft að biðjast afsökunar og jafnvel bjóða gestum í sér heimsókn til að friða viðkvæmar sálir. Ég verð þó að segja að stundum er ágætt að þurfa ekkert að hugsa til að geta brosað að hlutunum og því "er bæði betra". Ég yrði ekki hissa á því að næstu lög um handfrjálsan búnað undir stýri fjalli um notkun rafknúinna rakvéla miðað við akstur minn á leiðinni í skólann í morgun. Ég gleymdi sumsé að raka mig í gær á vaktinni og sá mér leik á borði í hafnarfirðinum að nýta restina af leiðinni til raksturs sem gekk nokk vel og vakti mikla lukku meðal annarra ökumanna. Tel ég víst að þeir hafi verið agndofa yfir tilþrifum mínum þegar þeir sluppu hver eftir annan naumlega við aftanákeyrslur og hin ýmsu umferðarlagabrot vegna áhuga á þessu athæfi mínu. Ég verð að lýsa óánægju minni með nýnema í verkfræðinni þarsem ekki hafði verið skipulögð hylling við komu mína í háskólabíó í morgun. Mér þykir það ekkert annað en sjálfsagt að nýnemar taki upp þennan sið til að sýna virðingu sína fyrir eldri nemum í verki. Stúlkum á fyrsta ári munu geta pantað tíma til að hylla mig í einrúmi á milli fyrirlestra... Hvernig mér datt í hug að skrá mig í 4 sumarpróf veit ég ekki en ég er farinn að sjá vel eftir því! Álagið er búið að vera gígantískt síðustu daga og mun ekki linna fyrr en um hádegið á morgun þegar prófi í greiningu rása verður skilað af hendi .. Eftir prófið tekur nú reyndar ekki við hrein og bein afslöppun með tilheyrandi bjórsulli eins og ég hefði viljað heldur verður stefnan tekin suður með sjó (reyndar svona frekar vestur) í átt að keflavíkurflugvelli þar sem ég tek við Togga, verklingi með meiru, sem ætlar að vera svo vænn að sitja fyrir mig fyrri hluta vaktarinnar svo ég geti fallið með stæl! Nú er fer að líða að því að nýji meðleigjandinn mæti á svæðið en hef ég enn ekki séð neitt af honum þó ég sé búinn að (líkast til) hitta alla fjölskylduna hans! Undarlegt ekki satt? Ég verð að játa að frá því að ég fór að heiman um 16 vetra gamall hefur mér þótt best að koma mér fyrir sjálfur þegar ég færi mig til og forðast afskipti foreldra við slíka iðju enda þykir ekki góðri lukku að stýra að reyna að reka útibú frá hótel mömmu. - allavega ekki án mömmu! Það er þó von mín að drengurinn sanni sig með aldrinum og nái að klippa á einhverja þá strengi sem halda honum svo vel frá fallinu þar sem ungarnir verða jú að blaka vængjunum eigi þeir að taka flugið. Skvísan mín varð eins árs í dag!! Hún er nýbyrjuð að labba og verður haldið uppá afmælið hennar bæði á laugardaginn og á sunnudaginn.. Ég mun persónulega koma til skila öllum afmæliskveðjum sem berast..
(gestir fr?5. ?st. '0) |