Ég var rétt í þessu að stíga út úr síðasta prófinu mínu hér í BigButtBurger-landi í bili og nú er bara að byrja að pakka og ganga frá. Ég fer með flugi frá Marion um hádegisbilið á morgun og verð lentur í Keflavík snemma morguns á föstudag, eftir viðkomu í St. Louis og Minneapolis. Það er allt troðfullt af bílum hérna núna og fólki að labba út um allar trissur með kassa, húsgögn og ditten og datten, en flestir voru að klára prófin sín í dag og fara þ.a.l. heim strax í kvöld. Þegar maður sér allt þetta fólk standa í þessu veseni getur maður nú ekki annað að vera feginn að hafa bara tvær ferðatöskur og tannbursta í vasanum sem maður þarf að burðast með í þessum flutningum. :) Reyndar er það nú bara skammgóður vermir þar sem maður þarf víst að bera alla búslóðina í nýja heimilið, Boðagranda 1 - 107 Rvk., strax eftir helgi. En djö.... verður það ljúft að komast í eigin íbúð, með eigin sturtu, eigin vask, eigin eldhúsaðstöðu, eigið klósett (!!!) og eigið allt. :) Samt langar manni nú mest til að gráta að þurfa að yfirgefa veðrið hérna eins og það er t.d. í dag, en ég vona bara að það sé satt sem fólk segir, að Mogginn lýgur aldrei, því akkúrat núna er fyrirsögnin á mbl.is: "Vorið öslar áfram og sumarið er í nánd". :) Annars segi ég þetta bara gott að sinni hér úr vesturheimi (ég legg áherslu á orðin "að sinni";) ).... og þakka Kanalandi fyrir mig, og einnig sem sem hlýddu. ;)
Þetta er Úlf Viðar Níelsson, fréttaritari Kanatjattsins, sem kveður frá USA.
posted by Úlf Viðar Níelsson 17:19
One down, three to go... JAmm... nú er mAður búinn í fyrstA prófinu og gott ef ekki Að mAður hAfi bArA ekki hAlAð inn fremstA bókstAfinum í stAfrófinu. Ætlaði sá er þessi orð skrifar að halda upp á árangurinn með "a night at the movies" en hætti undirritaður snarlega við þegar hann komst að því að vasa sínum leyndust aðeins einn Ari, sá er við Doll er kenndur, og 30 cent. Ákvað ég að grípa ekki til kredit-kortsins, en það hefur verið harðlæst ofan í skúffu eftir að krónan fór að leika lausum hala, með tilheyrandi vosbúð fyrir íslenska námsmenn, stadda á erlendri grundu. Talandi um útlendinga í Ameríku, þá hef ég komist að því að það er ekki dans á rósum að vera ekki Born in the USA, eins og Brús nokkur VorSteinn söng um árið. Málið er það, að hér eru 90% útlendinga Asíubúar, sem flestir tala ekki miklu betri ensku en Íslendingar talar dönsku, ;) og þar af leiðandi var mér tjáð í dag, af einum kennaranum hérna úti, að bandarískir skólar eru oft sérlega tregir við að taka á móti útlendingum vegna ótta við að fá nemanda sem maður þarf að eiga samskipti við með handapati og látbragðsleik. Því var mér eindregið ráðlagt að skella passamynd af sjálfum mér á komandi skólaumsóknir, en það hefur einnig þann kost (fyrir utan að upplýsa lesandann að hér sé ekki á ferðinni stamandi grjónaæta, heldur enskumælandi íslenskur sviða- og hrútspungs-aðdáandi) að viðkomandi sér að umsækjandinn er "white male" sem hefur alltaf ómeðvituð góð áhrif, jafnvel "in the US" (og kannski sérstaklega þar!?). Annars verður maður nú ekki víkingur í vesturheimi mikið lengur, þar sem þetta ku vera þriðja síðasta kveld mitt hér í landi menningar og menningarleysis. Það verður undarlegt að stíga fæti á fósturjörðina á ný og byrja aftur að tjá sig á tungumáli sem innan við 0,0045% jarðarbúa getur hrækt út úr sér. Mér þætti gaman að vita hversu stór hluti jarðarbúa vita að þetta litla, skrítna eyríki sé á annað borð til, allavega eru sorglega margir kanar sem virðast eingöngu vita að jörðin sé kringlótt fyrirbæri og halda að "it is money that makes it go around". Ætli Tito Túrista hafi bara ekki blöskrað þegar hann sá að heimurinn lítur ekki svona út:
posted by Úlf Viðar Níelsson 22:35
Ég hef komist að því að ég er orðinn letingi geimsins eftir þessa önn. Nú hefur þetta "upplestrarfrí" staðið í tvo daga og ég er gjörsamlega komið með ógeð á lærdómi. Maður er orðinn allt of góðu vanur hérna úti....! Annars er lítið að frétta héðan úr vestri, nema ef til vill það að í dag kom allt í einu heljareinir "thunderstorms" með tilheyrandi úrhellisrigningu, þrumum og eldingum. Kannski er það hins vegar bara ágætt þar sem maður freistast þá ekki út í sólina á meðan, heldur þarf að húka inni yfir bókunum. Ágætis tilbreyting frá Íslandi þar sem það virðist vera þannig ár eftir ár að veðrið fer fyrst að vera bærilegt og þægilegt, akkúrat í miðjum próflestri. Annars er hitinn hérna náttúrulega ennþá í ca. 27 gráðum og bendir til að haldast þar fram að brottför. :)
posted by Úlf Viðar Níelsson 18:21
Gaargg! Í sakleysi mínu fór ég út í bókabúð í morgun til að selja eina af skruddunum sem ég hef notast við þessa önn hjá SIU. Þar sem háskólabókabúðin fór á hausinn fyrir nokkrum vikum og hefur verið lokuð síðan, rölti ég niður í bæ til að selja hana þar. Í rauninni er bara ein bókabúð sem bíllausir og strætóþreyttir háskólanemar geta með góðu móti komist í, og það hefur þessi bókabúð svo sannarlega notfært sér! Þegar ég kem að "buy-back" standinum er mér sagt að aðeins verði borgaðir 18 dalir fyrir bókina, sem ég keypti 4 mánuðum fyrr á 73 dollara! Maður verður því e.t.v. að sætta sig við 5000 kr. tap á hverri einustu bók, eða jafnvel meira, því það er ekki eins og maður geti troðið þessum bókabunka í þessar tvær ferðatöskur sem ég hef meðferðis. En ætli maður verði ekki bara að líta á björtu hliðarnar, a.m.k. er hver dollari 100 króna virði núna í stað 80. kr. ;)
posted by Úlf Viðar Níelsson 18:45
Spakir menn segja að í dag mun vera kominn föstudagur og síðustu kennsluvikunni þar með lokið. Nú fer ég því í gríðarlangt upplestrarfrí sem varir í heila 2 daga! ;) Ég er þegar búinn með eitt "take-home exam" svo ég á bara 4 próf eftir og er fyrsta prófið á mánudag, tvö á þriðjudag og eitt á miðvikudag. Frekar svaðaleg próftafla, en hins vegar gilda prófin reyndar ekki nema um 35% hvert. En maður ætti nú samt kannski að fara að glugga aðeins meira í bækurnar.... enda 5 daga púl ekki alslæmt eftir tæplega 4 mánaða afslöppun. :)
posted by Úlf Viðar Níelsson 12:49
Í gærkvöld lauk Survivor 2 með þriggja tíma maraþoni, sem var með mjög sérstökum endi svo ekki sé meira sagt. :) Sigurvegarinn var .......... nei, nei... ég er nú ekki svona nasty. Fannst eiginlega það rosalegasta við þetta allt saman vera þegar spjallað var við konuna sem fyrst fékk að fjúka frá Ástralíu eftir aðeins 3 daga, því manneskjan brotnaði algjörlega saman og sagði að þetta hefði gjörsamlega eyðilagt líf hennar. Útsendingin var "live" svo að andrúmsloftið sem myndaðist var frekar magnþrungið. Survivor 3 mun síðan verða í Afríku, væntanlega í Kenýa. Einnig er verið að tala um að búa til Celebrity Survivor þar sem stjörnur Bandaríkjanna slást um milljón kallinn (....þó að verðlaunin væru væntanlega bara dropi í hafið af heildarauði þeirra). Og eins og fram kemur á vef CBS, þá hefur " the comedian Ray Romano, actress Kate Hudson, basketball player Kobe Bryant, and The Early Show anchor Bryant Gumbel, all have expressed interest. Frá heimili skemmtanaiðnaðarins og lágmenningar, ;) Wolf "Iceman" Nielsson.
posted by Úlf Viðar Níelsson 12:28