Eldri tíðindi


august 29, 2001


If you drink, don't drive. Don't even putt.
Dean Martin


HAFNFIRÐINGUR
Þá er það opinbert, ég er formlega orðinn Hafnfirðingur, brandarar þess efnis vinsamlega afþakkaðir.
Ég og Hanna fluttum formlega inn á laugardaginn síðasta og sváfum fyrstu nóttina okkar í nýrri íbúð þá um kvöldið. Frá því að við fengum afhent þann 19.ágúst var allt búið að vera á fullu við að mála, sparsla, þrífa ofl ofl. Hann Birgir frændi hennar Hönnu var svo rosalega almennilegur að lána okkur bíl (sem við höfum ennþá....) sem hefur komið sér óendanlega vel síðustu dagana.
Við höfðum verið að taka með okkur nokkra kassa í hverri ferð inn í Barmahlíð þannig að á laugardaginn var "bara" eftir að taka alla stóru hlutina. Hver annar en Birgir reddaði flutningabíl fyrir okkur kl 16 og þá mættu líka Gummi, Marri og Bogi til að aðstoða okkur. Flutningarnir tókust afar vel og öllu var rumpað af 3ju hæð í Barmahlíð 34 upp á 4. hæð að Suðurbraut 16 á rúmum klukkutíma. Drengirnir fengu svo "límónaði-hressingu" á eftir.
Myndir af öllu íbúðarferlinu munu verða birtar innan tíðar, sem og frá Menningarnótt, en það er framtíðarmúsik.


august 23, 2001


Rock and roll is the hamburger that ate the world.
Peter York


STEINBOR 08:08
Draumfarir mínar voru rofnar á ruddalegan hátt í morgun þegar steinborinn hóf upp raust sína við tröppur Blikaáss 15. Þar vorum við Hanna í fastasvefni ásamt Önju að passa kofann fyrir tengdó. Anja var ekkert sérlega blíð á brá við þessa vakningu, en henni rann fljótt reiðin.
Þessi steinbor var þó sem englasöngur í eyrum mínum í samanburði við athyglissjúku tjónabeljuna sem sat fyrir framan okkur á Coldplay í gærkvöldi. Sú var nú pirrandi....

COLDPLAY
Við fórum á tónleika í gærkvöldi. Ég, Hanna, Maggi og Ottó mættum um kl 20:30 og náðum sætum í stúkunni rétt áður en allt fylltist. Maus hóf leikinn og virtist lélegt hljóð vera sveitinni fjötur um fót en engu að síður var stutt prógram þeirra prýðisgott.
Sálin var jafn flöt og froðukennd eins og venjulega. Fínir tónlistarmenn, ekkert að gerast í tónlistinni sem þeir fluttu frekar en fyrri daginn.
Hljómsveitin minnir mig á margan hátt á Toto. Margir af félögunum hafa farið í FÍH og þar virðist sem Toto sé svona skylduhlustun, vegna þess hve trommarinn er/var góður eða eitthvað. Nema hvað, tónlistin er bara hreint út sagt leiðinleg. Soldið svona eins og góður hagfræðingur hjá Hagstofunni, mjög góður í tölfræðilegum upptalningum en rosalega óspennandi að hlusta á hann....
Coldplay mættu sterkir til leiks og Chris átti leik. Ég naut tónleikanna mjög vel á milli píkuskrækjanna, gelgjublaðurs og brölts í áðurnefndri belju fyrir framan okkur. Daman unga var ekkert að velta fyrir sér þeim möguleika að það gætu verið fleiri á tónleikunum en hún, sem hefðu jafnvel áhuga á að heyra í og sjá tónlistarmennina. Hún gargaði bara og gelgjaðist, enda vissi hún ekki hvort lög voru að byrja eða enda. Ég er eiginlega viss um að hún var ekki að fara á tónleika með hljómsveitinni Colplay heldur fór hún með FM957 genginu sínu að hlusta á "lag númer 15 á Pottþétt sumar, ógislega gott !".
Að öllu öðru leyti var mjög gaman á tónleikunum og þeim lauk rétt eftir miðnættið og við fórum sátt í bælið.

NÝ HEIMKYNNI
Núna er allt á fullu upp í íbúð að gera klárt. Við (mestmegnis Hanna) erum búin að sparsla í og pússa flestar holur og hæðir á veggjum og lofti. Málningarvinnan hófst svo í dag og gengur vonandi sem hraðast því draumurinn er að ná að flytja um helgina.



august 17, 2001


You live and learn. At any rate, you live.
Douglas Adams


AFHENDING
Það er loksins komið að hinum langþráða degi. Næstkomandi sunnudag munum við Hanna taka formlega við íbúðinni okkar að Suðurbraut 16 í Hafnarfirði. Það verður rosalega spennandi að mála, flytja og koma sér fyrir á nýja staðnum og við bíðum átekta.

STÓRA-HOF OG HAFNARDAGAR
Um síðastliðnahelgi kíktum við Hanna upp í bústað til mömmu og pabba upp að Stóra-Hofi við Árnes. Réttara væri að segja að þessi bústaður Sunniðnar væri höll, svo glæsilegur er hann. Við gistum eina nótt eftir að hafa snætt yndislegan grillmat að hætti Sæmundar en fórum svo á kreik um nágrennið daginn eftir. Þá kíktum við upp að Búrfellsvirkjun sem var með opið hús. Þar var víst eitthvað bilað og ekki var hægt að skoða nema blá-andyrið og kíkja á túrbínurnar úr fjarlægð. Einnig kíktum við á Hjálparfoss og víðar um nágrennið, mjög yndislegt allt saman.
Að loknum kvöldmat brunuðum við Hanna á Selfoss til að taka á móti Ástu sem var að koma úr 16 daga fjallatúr. Þaðan brunuðum við beint í Þorlákshöfn til að taka þátt í hátíð vegna 50 ára afmælis Þorlákshafnar. Það var hin besta skemmtun og myndirnar má sjá hér:




august 9, 2001


Perhaps, after all, America never has been discovered. I myself would say that it had merely been detected.
Oscar Wilde


FRÁ AUSTUR-INDÍUM TIL VATNASKÓGAR
Undangengin helgi var víst verslunarmannahelgin margfræga. Við Hanna tókum þó lífinu af stakri ró og fórum út að borða á Austur-Indía fjelaginu á föstudagskvöldið í góðra vina hópi. Þar voru heiðurshjónin Sveinn og Kristín mætt, ásamt Svövu Rán, til mikillar átveislu sem stóð fram á kvöld. Eftir drykk á Hverfisbarnum var farið heim í bólið stuttu eftir miðnætti, því Vatnaskógurinn beið handan sólarupprásar.

Svefnhöfginn varð viljanum yfirsterkari og við Hanna sváfum út í stað þess að leggja af stað snemma. Við fórum þó af stað um kl 13 upp í Vatnaskóg, en á leiðinni uppeftir voru "pökkunarhæfileikar" dregnir fram í dagsljósið. Sundföt var ég ekki með og úlpurnar urðu eftir. Ég var þó með sjálfum mér og nokkuð viss um að tannburstarnir væru á vísum stað. Of seint þótti í rassinn gripið að snúa við þannig að við létum kylfu ráða kasti.....

Dvölin í Vatnaskógi var alveg indæl. Vikki, Linda, Andri, Hannes og Guðrún höfðu slegið upp tjaldbúðum og litla rúmfatalagerskúlutjaldið okkar varð heldur væskilslegt milli tjaldvagnsins og risa-kúlutjaldsins. Páll Rósinkrans og Óskar komu og fluttu stórfínt prógramm en Bubbi kom svo á eftir. Ég verð nú að viðurkenna að gamli maðurinn var að svæfa mig og aðra í kringum mig. Kannski erum við Hanna orðin svona gömul, en við þraukuðum ekki lengur en til kl 1 eftir miðnætti og fórum þá í háttinn.

Daginn eftir var stórgóður fyrirlestur um trú og efa í textum U2 sem Gunnar flutti. Ég verð nú að viðurkenna það að ég hafði ekki spáð svona djúpt í textunum, en Gunnar hefur greinilega gert það og þessi fyrirlestur var alveg stórfinn. Það sem eftir lifði dags var slakað á og horft á rigninguna aukast smátt og smátt. Við Hanna ákváðum að leyfa mótsgestum á Sæludögum í Vatnaskógi að fá sólina aftur þannig að við pökkuðum saman á nýju mótsmeti og þrykktum í bæinn. Mánudaginn mætti ég svo í vinnuna því það er víst nóg að gera á þeim bænum.




august 3, 2001

It's all right letting yourself go as long as you can let yourself back.
Mick Jagger


HELGIN...
... sem við verslunarmenn er kennd, er við það að skella á. Þá rjúka margir til og yfirgefa sitt daglega líf og eignast nýtt líf yfir helgina, í annari samhliða veröld. Það er samt skemmtilegt að velta fyrir sér því hverjir það eru sem eru helst að vinna á mánudaginn. Rosalega margir í verslun og þjónustu er ég hræddur um.
Ég og Hanna ætlum að hafa þetta allt saman á rólegu nótunum. Förum út að borða í kvöld á Austur-Indía með Sveini og Kristínu en leggjum svo af stað upp í Vatnaskóg á sæludaga í fyrramálið.

ÞJÓÐHÁTÍÐ...
... verður haldin í Eyjum sem fyrr. Þar verður eflaust æði margt um manninn eins og undanfarin ár. Margir eru þó hvað spenntastir fyrir að berja íturvaxið spendýr augum sem þar býr. Nei, það er ekki Keikó heldur Árni Johnsen.


Því hefur verið lýst yfir að hann munu sjá um kynningu og brekkusöng eins og undanfarin ár. Það þykir sumum undrum sæta, en það á víst að gerast. Ég hef einnig heyrt orðróm um að Árni muni synja "Rangur maður" á upprisuhátíð Sólstrandargæjanna kl 17 í dag úti í Eyjum.

Ég er með samsæriskenningu, eða öllu heldur ótta í brjósti. Málið er það að Árni mun fá kaldar kveðjur frá skattborgurum í Herjólfsdal sem hafa hellt hressilega á sig. Hvað er meira freistandi en að láta eina bokku, stein eða annað lauslegt fjúka á karlinn ? Það yrði það versta sem gæti gerst í stöðunni því þá færi Árni sjálfkrafa í píslavottapakkann.

Ég sé þetta alveg gerast, forsíðufrétt á DV, Árni umvafinn sárabindum, umhyggju og samúð þjóðarinnar upp á Borgarspítala. "Nú er komið nóg, Árni og fjölskylda hans hefur þurft að þola nóg, leyfum sárum þeirra að gróa í friði". Hrikalegt, almenningur myndi tárast yfir þessari sápuóperu, fyrirgefa týnda syninum og hleypa honum inn á þing aftur, eftir 6 mánaða launað hressingar og endurhæfingarleyfi. ALDREI !

Hannes Hólmstein gerði veika tilraun til einhvers konar réttlætingar vitnaði hann í Sir Francis Bacon: "Tækifærið skapar þjófinn". Give me a break !

BRYNVARÐUR BANDITTI
Mér finnst það forgangsverk að koma í veg fyrir það að Árni nái að snúa þessu öllu upp í píslagöngu með því að passa upp á það að gestir þjóðhátíðar nái ekki með nokkru móti að skaða hann líkamlega. Mín tillaga er sú að fá Pope-mobile lánaðan frá páfanum og geyma Árna í honum yfir þjóðhátíð. Það ætti að tryggja það að hann mæti réttlátri refsingu sinni með fulla heilsu.





july 31, 2001

Life... is like a grapefruit. It's orange and squishy, and has a few pips in it, and some folks have half a one for breakfast.
Douglas Adams


BRÚÐKAUP
Þann 21.júlí fórum við Hanna í stórskemmtlegt brúðkaup austur fyrir fjall hjá Vigdísi og Magga. Athöfnin var í Gaulverjabæjarkirkju en svo var haldin fjölmenn og fjörug veisla í íþróttahúsinu á Stokkseyri á eftir. Þetta var mjög vel heppnað í alla staði og ég verð að segja að grillmeistarinn skoraði mörg stig.




july 27, 2001


A diplomat...is a person who can tell you to go to hell in such a way that you actually look forward to the trip.
Caskie Stinnett


RAUÐVÍN OG OSTAR Í ÖSKJUHLÍÐ
Ég átti leik eftir að Hanna hafði komið mér á óvart með mat á Ítalíu og leikhúsferð þann 27. maí sl. Ég ákvað að koma á óvart með lautarferð föstdaginn 20 júlí. Hanna fékk ekkert að vita nema að hún ætti að búa sig til útivistar. Ég tók bakpoka og skundaði á stað með Hönnu mér við hlið, titrandi af spenningi og forvitni. Ég fór með dömuna upp í Öskjuhlíð í rjóður innan um kanínur og batt fyrir augun á henni og lét hana halda fyrir eyrun. Þá gerði ég allt klárt, tók upp rauðvín, osta, vínber, kerti og teppi og setti þetta allt snyrtilega upp. Svo lét ég dömuna tylla sér á teppið og svipti hulunni af augum hennar og það sem hún varð hissa ! Við áttum saman ánægjulega stund þarna í góðviðrinu með útsýni yfir fossvoginn og dreyptum á rauðvíni, nörtuðm í osta og létum vikuna líða úr okkur. Hanna, nú átt þú leik ;o)