Það virkar á vefnum
Á gáttinni minni sá ég fyrirsögnina:

What Works on the Web - SPECIAL REPORT : E-COMMERCE.

Það virkar að hafa hástafi.

Þegar smellt er á hlekkinn kemur upp viðtal við Leonard Shneyderman þar sem hann tilkynnir umheiminum að maður verði helst að hafa meiri tekjur en gjöld til að skila hagnaði - á vefnum. Talandi um „post-bubble“ speki.

Viðtalið birtist í vefriti sem notar ramma, inní ramma einhvers annars vefs. Tvöfaldur rammi => tvöföld gleði.

Hvað segja vef-fagurfræðingar um hlekk sem er í eðli sínu mótsagnakenndur?

16:12 | #


36. þing Sambands ungra sjálfstæðismanna
Í dag hefst 36. sambandsþing ungra sjálfstæðismanna.

Fyrir þingið var sett saman það sem á ensku kallast „think tank“ (ísl þýðing?) og var farið yfir þau málefni sem bera hæst í íslenskum og erlendum stjórnmálum í dag.

Hlutverk þessa hóps ungra hugmyndafræðinga var að koma með slagorð þingsins; eitthvað frumlegt, ögrandi og heillandi. Slagorð sem fjölmiðlar myndu slefa yfir og hafa eftir ljónshjörtunum aftur og aftur, þegar ný heimsmynd sökum hryðjuverka væri ekki til umfjöllunar.

Eftir mikla kaffidrykkju, hugmyndavinnu, göngutúra í rigninu (ég fæ allar mínar hugmyndir í rigningu) og umræður fékkst loksins ásættanleg niðurstaða. Útkoman er eitt flottasta og frumlegasta slagorð seinnitíma ungliðapólitíkur:

Lægri skattar!

11:02 | #


Clark, Jean og Evran
Fyrir tilviljun rakst ég á síðuna Clark Motors Net sem selur ýmsar vörur fyrir áhugamenn um breska bílamenningu. Mig langar rosalega í svona flugmannahúfu fyrir veturinn.

„These time-tested examples of modern sportswear apparel will have you cutting a dashing pose!“

Eins og aðrar vefverslanir býður þessi uppá upplýsingar um fyrirtækið, en þar má m.a. sjá mynd af eigendum þess, Clark og Jean.

Hjónin eru myndarleg og ég er alvarlega að íhuga það hvort ég ætti ekki að panta mér eina flughúfu með gleraugum. Þá væri ég töffari.

En svo ég komi mér að efninu var upphaflegur tilgangur færslunnar að deila því með umheiminum að Sif, sem var að koma heim frá Brussel, gaf mér kaffikrús með fána Evrópusambandsins að gjöf. Takk!

Á morgun mæti ég í félagsherbergi stærðfræði og eðlisfræðinema með Evrukrús í farteskinu svo ég geti hætt að fá lánaðar kaffikrúsir.

Í ljósi greinar minnar um Evrópusambandið kemur þetta kannski sérkennilega út en hei, þetta er flott krús!

01:21 | #


Rás 2 reynir að vitna í Nostradamus
Í dægurmálaþættinum Brot úr degi þuldi umsjónarmaður þáttarins (Axel Axelsson?) upp spádóm frá Nostradamus, sem hann sagðist hafa fengið sendan í tölvupósti.

Spádómurinn var innlegg þáttastjórnanda í umræðu um atburðina hræðilegu í Bandaríkjunum.

Tilvitnunin var á ensku og var því gerð tilraun til að þýða spádóminn um leið og hann var lesinn. Þýðingin hlýtur að flokkast undir eitt vandræðalegasta augnablik í sögu íslensks útvarps. Á tímabili hélt ég í fullri alvöru, að ég væri að hlusta á útvarp Sögu eða Bylgjuna - ekki Efstaleitisherinn.

„While the fortress endures“, þýddi þáttastjórnandi „þegar virkið fellur“ og tókst að giska á nákvæmlega öfuga merkingu orðsins endure.

Síðasta setning spádómsins hljómaði eitthvað á þessa leið

„the great leader will succumb.“

Eftir smá umhugsun viðurkenndi þýðandinn mikli að hann þekkti ekki merkingu orðsins succumb.

Eftir næsta lag sem var spilað tilkynnti okkar maður að skv. öðrum tölvupósti var hið vitlaust þýdda ljóð alls ekki frá Nostradamus, heldur var þetta gabb sem gengur ljósum logum um Internetið.

„Engu að síður athyglisverð pæling hjá höfundi“ var niðurstaðan.

Hvort sem þetta var skrifað af húsmóður í Texasfylki eða Nostradamus, þá er þetta alls ekki athyglisverð pæling. Fylgjendur Nostradamusar eiga alltaf jafn erfitt með að útskýra torskild kvæði hans, fyrr en þeir geta tengt þau við atburð sem þegar hefur átt sér stað.

Það er að minnsta kosti ljóst, að greyið hann Nostradamus spáði því ekki að rugludallar framtíðarinnar myndu túlka orð hans sem spádóma.

Hvað ætli Nostri hafi annars sagt um starfslokasamninga Rásar 2? Við munum líklega ekki getað túlkað það fyrr en eftir á.

12:58 | #


New York, New York
Báðir World Trade Center turnarnir hrundu til grunna eftir að sitt hvorri flugvélinni hafði verið flogið á þá. Önnur vél klessti utan í Pentagon og sú fjórða...

Merkilega litlar fréttir af þeirri fjórðu. Ætli hún hafi verið skotin niður? Maður er agndofa yfir þessu öllu saman.

Hvernig er hægt að stöðva þá sem fórna eigin lífi fyrir hryðjuverk? Hverjir eru heiglarnir sem fagna því að skipulagning þeirra hafi tekist? Hvaða gagn gerir eldflaugavarnarkerfi þegar við svona andstæðinga er að etja?

Af öllum stöðum, þá tókst þeim að rústa hluta af Pentagon, hernaðarmiðstöð Bandaríkjamanna.

Í dag fékk ég fréttir frá vinafólki sem býr í miðbæ New York borgar - þau eru heil á húfi. Íbúar Manhattan komast ekki af eyjunni því allar samgöngur til meginlandsins eru teknar frá fyrir hjálparfólk og slasaða.

Þegar sýndar eru myndir af fólki sem hoppar út úr byggingu World Trade Center í örvæntingu sinni, fæ ég hroll niður í tær.

Kottke er með ýmsa hlekki, m.a. umræður á Metafilter, Camworld (bloggari frá New York), Michelle (frá Washington), World New York og New York Times.

Manni verður óglatt af því að horfa á allar þessar myndir.

00:06 | #


Nató skeptískur
J. David Galland, fyrrverandi hermaður og upplýsingasafnari fyrir Bandaríkjaher (lesist: njósnari) hefur líklegast ekki komið til Keflavíkur en hefur eigin skoðanir á bandalaginu: Disband Nato.

Hve áreiðanlegur Galland er engin leið að vita, en greinin er skondin á köflum. Í henni segir m.a.:

„It is time for the United States Military, and the NATO shield, steadfastly allied against the yoke of oppressive Communist expansion, to get a life.“

Hressandi að heyra skeptískan Ameríkana tala illa um Nató.

Um daginn heyrði ég fréttamann í útvarpinu spyrja stjórnmálafræðing hverjar líkurnar væru á því að Nató færi að skipta sér af Talibönum í Afganistan - hvað þyrfti til. Hvílíkur brandari. Skólabókardæmi um almannatengsl opinberra stofnana.

Hvar eru þeir í pólitík sem þjást af alvarlegum efasemndum um ágæti Nató? Ef Galland væri Íslendingur myndi sagan líklega stimpla hann sem vinstrimann. Hann yrði hrifinn af því.

01:46 | #







allsber

innlent

erlent

tæknilegt

diskurinn


Kíktu á hrekkjusvín.is, eina lífræna rafritið á Íslandi