10.8.00

Jæja, eftir mikla vinnu er búið að opna hmmm.is. Endilega kíkjið á síðuna og setjið skoðum ykkar á korkinn.
Ég mun ekki uppfæra þessa síðu áfram heldur færa mig yfir á hmmm.is.

17.7.00

Nú er hmmm.is orðið virkt. Við erum samt enn að fínpússa síðuna þannig að hún verður ekki opnuð alveg strax.

Einnig tók ég eftir að það er kominn útgáfudagur fyrir Urban Terror og á fyrsta prufuútgáfa að koma út 5. ágúst næstkomandi. Ég og margir aðrir hafa beðið spenntir eftir þessu moddi í ansi langan tíma og vonandi munum við ekki verða fyrir vonbrigðum.
Fyrir ykkur sem ekki vita þá er Urban Terror mod fyrir Quake3 og svipar til hins vinsæla Action Quake sem var mod fyrir Quake2. Einnig má fá nánari upplýsingar á heimasíðu Urban Terror.

4.7.00

Jæja, við erum búnir að vera að vinna í hmmm.is af fullum krafti og vonandi verður lénið virkt innan fárra daga. Þó eigum við eftir að hanna útlit vefsins þannig að það verður meiri bið í að vefurinn opni.

Ég hef lítið verið að pósta fréttum þessa síðu en það mun breytast um leið og hmmm.is verður komið upp. Á meðan hef ég verið að gauka smá fréttabútum að Blues í Bluesnews. Í dag má einmitt sjá tvo frá mér og ef þið vissuð það ekki þá heiti ég Gunnar Júlíusson.

26.6.00

Nú er búið að ákveða að lénið muni heita hmmm.is. Við höfum undirritað samning við Strik.is um efnisbirtingu. Núna erum við að vinna í því að gera allt klárt en ekki er komið á hreint hvenær hmmm.is verður tilbúið.

21.6.00

Ég hef því miður haft lítinn tíma til að vinna í síðunni minni undanfarið. Ein af ástæðum þess er að ég og nokkrir félagar mínir erum að setja upp okkar eigið lén og höfum verið að undirbúa það. Síðan mín mun þá flytja á nýja lénið og væntanlega breytast í útliti og þá mun ég vonandi hafa meiri tíma til að uppfæra hana.
Nánari upplýsingar koma síðar.

16.6.00

Ef þig hefur einhvertíman langað til að búa til skinn af þér fyrir tölvuleiki þá er breskt fyrirtæki sem kallast AvatarMe að bjóða upp á að skanna þig inn. Það virkar þannig að þú ferð inn í lítinn klefa og teknar eru myndir frá öllum hliðum og síðan eru myndirnar settar saman og búið til skinn. Síðan getur þú náð í skinnið á netinu og notað í ýmsa leiki eins og Quake, Sims, Unreal o.fl. Hægt er að sjá myndir og stutta umsögn hjá Gameplay.

15.6.00

Enn heldur Nvidia áfram að dæla út beta reklum fyrir skjákortin sín. Núna er komin útgáfa 5.30 fyrir Win95/98.
Lítill munur virðist vera á þessum og útgáfu 5.22 en sumir virðast græða nokkra ramma á meðan aðrir tapa þeim.



Powered by Blogger