|
Hjölli:
Gamalt scat
Bloggerar:
Bendt
Hlynur
Gummi Joh.
Kalli
Baldur
Hressar síður:
nagportal.com
bumsquad.com
Gellur
Skonsur
|
scat - klám - rassar
sdf
[ Hjortur Lindal ]
15:09
Hversu svalt er þetta? Djöfull er Sigur Rós að meika það í bandaríkjunum. Ekki nóg með að það sé uppselt á alla tónleikana þeirra heldur eru stjörnurnar í USA gjörsamlega að tapa sér yfir þessum snillingum. Ekki minni maður en Lars Ulrich (trommari í Metallica) hafði þetta um þá að segja í bréfi sem hann sendi hljómsveitinni eftir að hafa séð þá á tónleikum: ,,Thank you, thank you, thank you! We are in the studio right now struggling to make some sort of album. I'm going to go back after this completely inspired." Metallica began work on their new album at a secret studio location in San Francisco with producer Bob Rock on April 23. Ulrich described the sessions in his studio diary as more adventurous and experimental, adding that they'd kicked off the recording session with "sick, ugly new fucked-up jams". Tékkið á allri fréttinni hér. Það er á svona stundum að maður verður soldið stoltur af því að vera Íslendingur...
[ Hjortur Lindal ]
21:37
Munaður Já það er ekki amalegt að liggja upp í rúmi með fartölvuna sína og sörfa...á þráðlausa netinu hérna heima. Þetta er loksins orðið fullkomið...þarf ekki einu sinni að fara úr rúminu til að fara á netið!
[ Hjortur Lindal ]
22:26
Gaman að þekkja "frægt fólk" Ja..kannski ekki beinlínis frægt...en eftir nokkur ár skiluru. Þannig er nebbnilega mál með vexti að tveir góðir félagar mínir komust inn í Leiklistarskólann í gær. Þeir heita Gói og Atli og langaði mig bara að óska þeim til hamingju. Ég veit að þeir eiga alveg eftir að rokka þarna því þetta eru jafnvel miklir snillingar! Get bara ekki beðið eftir því að geta farið að horfa á þá leika á stóra sviði Þjóðleikhússins eftir nokkur ár, hugsanlega tekið einhverja skonsu með og kallað upp á sviðið ,,Gói minn...þú kemur í mat annað kvöld er það ekki'??!!'' Þá myndu allir sjá að Hjölli þekkir fræga fólkið!!
[ Hjortur Lindal ]
12:37
"Fyrirsögn" Jú, það fór eins og svo oft áður að Hjölli fór í vísindaferð í gær og var hress. Björ og fengi var haft um hönd og síðan var kíkt í gríðarhresst partí hjá Nemdendafélaginu. Það eina sem vantaði þar var meira rokk en þó var hressandi að nokkrir pullar í viðskiptadeildinni komu mér skemmtilega á óvart með því að vita töluvert um þungarokk og voru þeir alveg gjaldgengir í þær umræður. Hressandi það...greinilega ekki eintómir hnakkar í viðskiptadeild! Svo endar þetta einhvern veginn alltaf þannig að ég átta mig á því að ég er orðinn einn. Það gerðist líka í gær. Alltí einu voru bara allir farnir og Hjölli orðinn einn að djamma. En sem betur fer hitti ég hresst lið eins og Björk og Sunnu ( systir og frænka hans Hlyns ) og svo hitti ég líka Kidda snilling sem var með mér í kvennó. Ég var sérstaklega heppinn að hitta Kidda því ég átti ekki krónu í gærkvöldi og vissi því ekki hvernig ég átti að redda mér heim. En viti menn, haldiði að Kiddi splæsi ekki bara á Hjölla með sér í leigubíl. Þessi maður er snillingur. Auðvitað splæsi ég á pullann næst. Á heildina litið var þetta kvöld bara ágætt...hefði samt viljað kíkja á tónleikana í Hinu Húsinu en ....
[ Hjortur Lindal ]
11:19
Músíktilraunir Já...það fór því miður ekki nógu vel hjá okkur í keppninni. Við komumst semsagt ekki áfram og þykir mér það scat! Hljóðkerfið var náttúrulega að skemma töluvert fyrir, en ég datt eitthvað tvisvar út og gítarinn hljómaði eins og fokkin banjó miðað við hvað ég náði flottu sándi út úr honum á sándtékkinu. Auðvitað var ein hljómsveit með allan salinn með sér og komst áfram út á það og svo unnu Pollock systkinin út á dómnefnd. Þau voru að spila eitthvað svona ambient tölvuscat og Hjölli fílar það bara ekki neitt, en svona er lífið. Ég var samt virkilega sáttur við viðbrögðin sem við fengum út í sal, því þegar við komum á svið þekkti okkur enginn þarna og við fengum bara svona kurteisisklapp. En eftir fyrsta lagið varð allt vitlaust í salnum og allir komust í góðan fílíng.
Svo var ég líka að kíkja á www.reykjavik.com og sá þennan líka fína dóm um okkur - bara að öll dómnefndin hefði verið sammála þessu ;) ,,Ritalín var best að mínu mati. Þessir strákar voru með svona Limp Biskit dæmi í gangi og það fór þeim bara sérstaklega vel. Rappskotið rokk er töff. Í bandinu voru tveir söngvarar, einn stór og einn lítill en báðir flottir og var langskemmtilegast að horfa á þessa hljómsveit. Fyrsta lagið innihélt skemmtilegt rímnaflæði og töff takt en næsta lag var besta lag kvöldsins. Viðlagið: "Hún er flöt þessi LÚKA / sem lætur þig FJÚKA" fór bara ekki út úr hausnum á mér í gegnum allar næstu hljómsveitir. Dómnefnd gagnrýndi hana fyrir að vera kraftlaus en ég er alveg ósammála og hefði viljað fá þá áfram. Gangi þeim bara betur næst.
[ Hjortur Lindal ]
18:35
Ungfrú Ísland.is Guð minn góður!!! Hvaða djöfuls fávita fengu skipuleggjendur keppninnar til að skemmta þarna??? Ég hreinlega þurfti að stinga af eftir að vera búið að vera misboðið tvisvar með þessum viðbjóði! Maður hefði nú haldið að þeir hefðu getað fengið betri skemmtiatriði heldur en þessa tvo vitleysinga. Ef þetta á að vera fyndið þá er Hjölli ekki að fatta húmorinn! Gellurnar eru samt ágætlega hressar svona, vantar samt bathin-suit walkið hérna...Chloe vinkona okkar allra myndi taka það í nebban. Annars finnst mér þessi keppni bölvað scat! Allar að reyna að vera svo ógurlega posh og snjallar eitthvað en koma bara út sem heimskar ljóskur eða reiðar lesbíur! Ég vil frekar að þær séu sætar og þegi!
[ Hjortur Lindal ]
21:27
Músíktilraunir 2001 Mig langar bara að minna alla sem þekkja mig á að kíkja á mig á morgun í Nýja Tónabæ, en Hjölli er að fara að keppa í músíktilraunum ásamt bandinu sínu, Rítalín (sjá myndir hér fyrir neðan). Botnleðja verður að spila og einhverjir fleiri hressir og get ég lofað góðu stuði. Skemmtunin hefst á slaginu átta og ég get lofað góðu rokki! Endilega mætið og sjáiði Hjölla Rokk í góðum fílíng!
[ Hjortur Lindal ]
13:38
ROKK!!! Ég verð bara að segja það...mér finnst ég og hljómsveitin mín vera rokk!! Check the pics!





Þá vitiði afhverju ég er kallaður Hjölli Rokk!!
[ Hjortur Lindal ]
23:12
Serious Pimpin Þeir sem hafa gaman af hressleika hafa kannski líka gaman af því að nú er ég byrjaður að pimpast á www.beapimp.com. Það er einnig gaman að minnast á það að ég á 4 flottustu hórurnar af 5 í þessum skrifuðu orðum. Ekki amalegt það. Greinilegt hvert framtíð mín liggur...
[ Hjortur Lindal ]
23:19
Djöfuls drasl Hvað er með þennan helvítis blogger??? Eftir að hafa skrifað langa sögu um viðburði gærdagsins ýtti ég á post og ekkert kom nema helvítis fyrirsögnin sem þið sjáið hér fyrir neðan. Andskotinn, ég nenni ekki að skrifa þetta aftur!
[ Hjortur Lindal ]
17:50
Bjór [ Hjortur Lindal ]
17:47
Viðbjóður Fyrst að skrattinn og fleiri hafa verið að tala um smiðsrassgöt og stöðumælaborur langar mig að segja litla sögu. Annar söngvarinn í bandinu mínu (Kiddi) er tveggja metra rumur og breiður eftir því. Einnig gerist það ósjaldan að stöðumælirinn kemur í ljós þegar hann beygir sig fram. Þessi maður á líka geðveikan vin, og þegar ég segi geðveikur þá meina ég snarvitlaus. Anyhow, Einhverntíman var Kiddi að vinna við að bóna einhvern djöfulinn og var orðinn vel sveittur. Hinn geðsjúki vinur hans var líka að vinna með honum. Í eitt skiptið þegar Kiddi beygir sig fram skín í sveitta skoruna og vinurinn beint fyrir aftan. En hvað gerir geðsjúklingurinn? Hann stingur fingri djúpt ofan í skoruna og þegar Kiddi snýr sér við og ætlar að spyrja hvern djöfulinn hann sé að gera stingur hann puttanum upp í sig og sleikir!! Ef þetta er ekki viðbjóður þá veit ég ekki hvað. Þess má einnig geta að þessi sami maður kom einhverntíman heim til félaga míns af djamminu með kærustunni sinni og fleirum. Kærastan var í þröngum leðurstígvélum og örugglega vel sveitt innanundir eftir djammið. En nei...félaginn tekur hana úr stígvélunum og byrjar að sleikja á henni tærnar fyrir framan alla. Hvað er með þennan mann og að sleikja sveittan viðbjóð?? Mér finnst þetta hálf skrítið...
[ Hjortur Lindal ]
00:46
Gaman Jibbíkóla og húrra! Búinn með skilaverkefni 2 í gluggaforritun og það orðið gríðarfallegt. Ég er nokkuð sáttur við afraksturinn enda búin að fara töluverður tími í þetta. Annars sá ég að blogger.com var að minnast á NagPortal. Nokkuð nett það. Já bæ ðe vei...mér finnst Deftones vera besta hljómsveit í heimi. Þeir unnu líka Grammy í gær!!
[ Hjortur Lindal ]
00:21
Leti á formi skrifa Já það verður seint sagt að Hjölli hafi verið duglegur að skrifa upp á síðkastið. En fyrst að Hlynur og Bendt eru orðnir svona aktívir þá langar mig að halda þessu áfram. Hlynur var eitthvað að minnast á það að hann hafi slegið metið mitt Moorhuhn. Allt gott og blessað með það, en þú gleymdir að minnast á að þú spilaðir þetta til 3 á föstudagskvöldið og svo alla helgina geðsjúklingurinn þinn. Nei ég segi nú bara svona, ég er ekkert tapsár - veit bara hvenær ég á að hætta. Það er svo mikið að gera núna hjá mér að það er ekki fyndið. Um leið og ég er búinn að skila inn einu skilaverkefni er annað sett fyrir. Þetta er hætt að vera fyndið. Hins vegar er það mikil gleði að ég er búinn að skipta fartölvunni minni upp í nýja betri, HP omnibook 6000, sem rokkar alveg þvílíkt!!
Helgin var alveg ótrúlega ljúf...fór á bíl á djammið bæði kvöldin og skemmti mér bara þrusuvel. Hver er að segja að ekki sé hægt að djamma án öls? Ekki það að ég sé að breytast í einhvern góðtemplara, en þetta var samt ágætis tilbreyting - laus við þynnku og ekkert mál að koma sér heim. Kannski maður geri þetta aftur seinna, en ekki um næstu helgi því þá er vísindaferð ;)
[ Hjortur Lindal ]
10:27
scat Já það verður seint sagt að álagið hérna í HR sé ekki gríðarlegt. Ef einhver er að furða sig á skriftarleysi mínu þá er það bara út af því að blogg er núna einhvers staðar lengst aftast í forgangsröðinni hjá mér. Svo eru próf í næstu viku og allt að verða vitlaust. Það stoppar mig samt ekki frá því að mæta í útskriftina hjá honum Hlyni og vera gríðarhress.
[ Hjortur Lindal ]
15:20
Drepa!! Í gærkvöldi ákvað ég að vera gríðarlegur tölvunörd og fara á lan uppi í fb þar sem nokkrir hressir pullar voru saman komnir að spila CounterStrike. Þar voru ekki minni menn en Hlynur, Bendt og Gummi Jóh. svo nokkrir séu nefndir. Þetta var gríðarhressandi þó að frammistaða mín hafi ekki verið upp á marga fiska. Ég held að ég hafi verið duglegri við að drepa menn í mínu liði heldur en andstæðingana, en ég er samt ekki alveg viss. Samt ágætis tilbreyting að taka svona chill helgi.
Skutlaði síðan pakkinu út á flugvöll í morgun og er núna einn heima í góðum fíling.
[ Hjortur Lindal ]
20:00
|
|
|
[Gellur] [Klám!!] [snillingur.net] [tenderscatlove.com]
|