Merides....
Friday, May 25, 2001
Bloggerinn greinilega kominn í lag aftur...

Munnlega prófið gekk alveg ágætlega hjá okkur og fengum við bara nokkuð fína einkunn fyrir...
Jon Ivar Hermannsson



Sunday, May 13, 2001
Bloggerinn er í einhverju ólagi

Þetta er eitthvað skrítið með þetta sjálfvirka símkerfi...ég er búinn að vera að reyna að hringja hingað heim en fæ alltaf talsamband við Færeyjar og alltaf sömu færeysku konuna, og ég skil bara ekki orð af því sem hún segir...
Jon Ivar Hermannsson



Wednesday, May 09, 2001
Innan við 12 tímar til stefnu...

Þegar innan við 12 tímar eru til skila á verkefninu mikla, erum við ekki búin með allt verkefnið ennþá....þetta gildir að vísu um flestalla hópana svo að þetta verður að teljast eðlilegt...þó er aðallega um að ræða smávægilegar breytingar og smá fiff ( "fiff" = hér lagfæringar, viðgerðir o.þ.h.) hér og þar. Munnlega prófið verður síðan á fimmtudaginn ("GÚLP")...
Jon Ivar Hermannsson



Thursday, May 03, 2001
Staðan á vesturvígstöðvunum...

Ég fékk að vita úr prófunum í gær....og NÁÐI ÖLLUM!!! Þetta var auðvitað mjög ánægjulegt en það skyggir þó á að við erum í töluverði basli með forritið okkar í Lokaverkefninu. Svo eru náttúrulega ýmis önnur málefni sem að hefðu mátt vera öðruvísi en þau í raun eru... En, ég get ekki verið neitt annað en ánægður í dag á svona góðum degi. Ég vil svo bara benda á meðmæli dagsins...
Jon Ivar Hermannsson



Friday, April 06, 2001
Hnútur í maganum...

...er tilfinning sem er búin að vera ríkjandi seinustu daga....Eins og staðan er núna, þá er ég búinn í þremur af fjórum lokaprófum á minni annarri önn. Ég er hæfilega bjartsýnn á það hvernig gekk en geri ráð fyrir því að hafa náð. Prófið í morgun tók mjög á okkur félagana og voru tveir sem að sváfu nánast ekkert í nótt. Ég gaf mér þó um 3 1/2 klukkutíma fyrir svefn. Ekki leist mér nú heldur á þegar ég var búinn með prófið á klukkutíma og kortéri þegar það var 3 tímar á lengd.
Jon Ivar Hermannsson



Tuesday, March 27, 2001
Allt á fullu...

Það er nóg að gera í prófaundirbúningnum núna og sitjum við félagarnir og lesum stíft. Ég hef þetta nú bara stutt núna, vil bara benda á að það er tvennt nýtt komið í meðmæladálkinn...
Jon Ivar Hermannsson



Monday, March 26, 2001
Það er staðreynd

Já, það er staðreynd að það er aðeins vika í lokapróf hjá okkur á fyrsta ári í Tölvunarfræðinni í HIR..., á einni viku eigum við að taka 4 próf (rosalega langur tími á milli prófa??...nei). Mér líst reyndar ekkert allt of vel á prófin ef ég á að segja eins og er...til að róa taugarnir fór ég í vísindaferð seinasta föstudag og var það hreinasta snilld. Íslandsbanki-FBA voru mjög rausnalegir og virðist þetta vera hinn ákjósanlegasti vinnustaður. En núna kemst ekkert annað að en prófin...
P.S. Ég er búinn að skella einu lagi eða svo í meðmæladálkinn svona til gamans...
Jon Ivar Hermannsson