Bloggwebbið
Tuesday, August 07, 2001
Prufa Prufa
posted by Einar S Einarsson on 8/7/2001 09:47:12 AM
Sunday, June 04, 2000
Enn einn aðgerðarlaus sunnudagur að renna sitt skeið. Fór reyndar á æfingu og náði að ná mér í örlítil meiðsli, en vonandi ekkert sem hindrar mann að spila á miðvikudaginn. Kunningi minn benti mér á eina góða síðu sem er þess virði að kíkja á -http://www.emode.com, en þessir góðu menn sem halda síðunni uppi eru með allskonar próf í gangi (nei, ég hef ekki ennþá lagt í IQ prófið), og fyrsta prófið sem ég tók hét "Celebrity Matchmaker Test" eða eitthvað svoleiðis. J. Aniston þótti þeim alveg smellpassa við minn karakter og ég varð ekkert svekktur. Þá er bara að fara að vinna í málunum...
posted by Einar S Einarsson on 6/4/2000 06:21:45 PM
Saturday, June 03, 2000
Jæja, 3. júní að renna sitt skeið, og ég búinn að sóa deginum í algjört rugl. Hef ekki farið meira en 3 metra frá sófanum síðan ég vaknaði í dag nema eitt skipti, þegar ég tók á móti pizzagaurnum.. :)
Ég ætlaði að segja mína skoðun á Gladiator á www.epinions.com, en hafði ekki kraft í það. Ætli maður endi bara ekki á því að segja það sama og D. Oddsson - "þetta var bara klisja." Hljómar þó meira sannfærandi þegar ég segi það. Ekki satt?
posted by Einar S Einarsson on 6/3/2000 03:24:48 PM
Thursday, June 01, 2000
Frídagur í dag. Vaknaði snemma, 0930 og fór í vinnuna um 1100. Æfing 1200 til 1330. Er búinn að vera að uppfæra mína flottu heimasíðu í Frontpage og Photoshop, og kemur hún vonandi alltilagi út....
posted by Einar S Einarsson on 6/1/2000 12:05:16 PM
Wednesday, May 31, 2000
Eftir að hafa sent liðinu póst, þá er líklegt að það kíki hérna við og skoði hvað blogg er.... Djö...er maður snar í snúningum... :)
posted by Einar S Einarsson on 5/31/2000 02:17:04 AM
Þetta vigðist svínvigka héðan úr vinnunni. Maðug getug virgkilega bloggað hvar sem er í heiminum.....Amazing
posted by Einar S Einarsson on 5/31/2000 01:43:54 AM
Sól og heiðskýrt í dag, en það verður örugglega rigning og suddi á 17. júní, sem að btw er frídagur á laugardegi....
Síðasti dagur mánaðarins og vinna langt fram á kvöld, en sofið frameftir á morgun...
posted by Einar S Einarsson on 5/31/2000 01:37:51 AM
Tuesday, May 30, 2000
Nú er að prófa fídusana hérna....
posted by Einar S Einarsson on 5/30/2000 06:07:53 PM
Þetta virðist svínvirka heimanfrá allavega...
posted by Einar S Einarsson on 5/30/2000 06:04:52 PM
Bara prófa!
posted by Einar S Einarsson on 5/30/2000 06:02:22 PM