Pétur Rúnar Guðnason
Grafískur hönnuður - vefsmiður, Margmiðlun hf.
Hafðu samband með einum eða öðrum hætti

d a g b ó k i n
s t e r n
n e w y o r k
k n i c k s
s p j a l l þ æ t t i r
g e s t a b ó k



Microboobs
Spice Girls
Bíllinn minn er til sölu! Golf '91, ekinn 140þús, tilbúinn í skoðun, nema hvað handbremsan er í smá ólagi (engar stórupphæðir). Nýstilltur og flottur, rauður og fagur, láttu þetta tækifæri ekki framhjá þér fara, 100þús staðgreitt, eða besta tilboð!
@ 12:04
°°

Þetta er nú alveg magnað. Ég hef borðað á efstu hæð 1 World Trade Center, sem er sá turnanna sem var ráðist á og féll til jarðar á eftir hinum. Á efstu hæðum hans voru veitingastaður og ráðstefnuaðstaða, veitingastaðurinn hét Windows on the World og var útsýnið sannarlega magnað þar sem ég sat við barinn og sötraði einhvern dýrasta bjór sem ég hef ofan í mig látið. Tilfinningin að standa við glerið og líta niður var líka ótrúleg, enda tæpir 500 metrar þverhníft niður.
@ 18:46
°°

Maður er léttur!

Í kvöld spila vorir menn við portúgalska liðið Boavista í ChampLeague, það gæti farið svo að maður þyrfti að kúldrast á Ölveri til að sjá leikinn. Ojbara...
@ 12:19
°°



Það er nú best að hafa sig hægan eftir 1-3 ósigur á heimavelli, en það sýnir sennilega að Liverpool liðið er ekki komið eins langt í þróun eins og margur hefði vonað! Houllier hefur sagt það sjálfur, við þurfum eitt ár í meistaradeild og meiri rotation á liðið áður en við getum farið að teljast meistaraefni. Nú er líka nýbúið að skipta um markmann, örfættan í þokkabót, svo þetta verður áfram spennandi.

Ég er annars búinn að vera að hlusta á nýju smáskífuna frá Jacko, You Rock My World. Get alveg mælt með henni fyrir þá sem fíla yfir höfuð R'n'B. Darkchild er á bakvið pródúksjónina, ég veit reyndar ekki alveg hvað það þýðir, en ég veit hins vegar að öll lög sem hefjast á því að söngvarinn stynur þetta nafn (hvort sem það eru stúlkurnar í Destiny's Child, Tony Braxton, nú eða Jacko) þá er lagið í það minnsta flekklaust hvað framleiðsluna varðar.

Hægt er að sækja nýja lagið frá þeim afskræmda á www.mp3-2002.com
@ 18:35
°°



Djöfull er ég hrikalega ánægður með Arnar í þessum pistli hans um sölumenn dauðans eins og hann kallar það. Ég fékk einmitt svona þú-verður-að-spara-til-að-geta-eignast-trilljónir símtal um daginn, en er í svipaðri stöðu og Arnar að því leiti að ég er að borga svokallaða vexti af lánum, og það eru ekki vextir fyrir viðkvæmt fólk.

Massive respect til Mr. A. Keepin' it real.
@ 01:44 °°


Þetta átti að sjálfsögðu að vera (Just ...a little kiss)! Sorry Jen!
@ 01:40
°°

Í framhaldi af Dylan umræðu má nú geta þess að ég sótti og hlustaði á nýja plöttu Jennifer Paige (Just ...a little girl) fyrr í kvöld. Rosalega furðulegt að hlusta á nýja plötu sem maður hefur samt heyrt svo oft áður. Skemmst frá því að segja að það er varla svo mikið sem frumleg nóta eða sánd-effekt á allri plötunni, fyrsta lagið engu að síður ágætur smellur.

Langar þig að tékka á þessu? Plötuna getur þú sótt af simplemp3s.com.
@ 22:37 °°


Það má með sanni segja að ég sé ekki mikill Megasarmaður, því miður. Mér skilst á þeim mönnum sem best þekkja til að það sé eitthvað það æðislegasta í heimi... þ.e.a.s. að fíla Megas. Ég bara næ því ekki, og hef ekki hátt um það. Ég get þó sagt mér til frægðar að ég fíla Dylan þokkalega. E.t.v. er það vegna þess að ég ólst upp við Dylan á fóninum hjá pabba...

Nema hvað, ég fékk ábendingu frá vinkonu minni um Blood on the Tracks áðan... og er dottinn í mikinn Dylan fíling hér á menningarsetrinu og loftskeytabirginu á Lokastíg. Nágrannarnir glænýju, sem eru að slípa glugga og brjóta niður veggi fá að njóta þess.
@ 22:34 °°



Jesus and his Lawyer, are coming back

Snilldarsetning úr "Novacaine for the soul" eftir Eels sveitina.
@ 22:35
°°
Það er algjört beisikk beisikkanna að þekkja The Twinkie Defence, sem byggist í stuttu máli á því, að eftir mikið át sykurs sé maður ekki ábyrgur gerða sinna (eða svona þar um bil).
@ 17:36 °°
Þakka þér fyrir Markús, en góðgætið er ekki í boði mín, heldur allt annarrar manneskju sem er nafnlaus, rosalega sæt og góðkunningi lögreglunnar.
@ 15:18 °°
Fanný var að hætta ....farvel!
@ 14:09 °°
Með lestri á þessu rakst ég á þessa frétt um hland sem er til sölu á Netinu. Kenneth Curtis safnar saman hlandinu sínu og ábyrgist að það er heilbirgt og óáfengt. Fínt Kenneth minn, fínt.

Þar sem ég er hönnunarstjóri þá er mér ljúft og skylt að lýsa yfir ánægju minni með línurnar á þessum vef... mmmmmmm línur!
@ 13:44 °°


Hljómar e.t.v. eins og grín... en FARM AID er staðreynd. Popparar og rokkarar koma Gif-og-klaufaveikum bændum til aðstoðar... já eða þannig.

Hér til hægri má sjá fulltrúa bænda, íbygginn á svip.
@ 13:36 °°


Með því að lesa þennan lista NYPOST um væntanlegar kvikmyndir rakst ég á þessar, sem hljóma a.m.k. athyglisverðar:
  • “The Wash”: Dr. Dre, Snoop Dogg and Eminem in a wacky comedy set in a Los Angeles car wash. (Oct. 3)
  • “Collateral Damage“: Arnold Schwarzennegger as a fireman who hunts the terrorist who killed his wife and daughter in an attack on a Colombian motorcade in Los Angeles. Directed by Andrew Davis “The Fugitive”). (Oct. 5).
  • “The Last Castle’’: Robert Redford as a wrongly imprisoned three-star general who leads an inmate revolt against a corrupt warden (James Gandolfini). (Oct. 12). -- ohhhh eitthvað verður Gandolfini góður fangelsisvörður!
  • “Mulholland Drive”: David Lynch’s latest Southern California thriller was expanded from an unsold TV pilot. The cast includes Laura Herring, Bill Ray Cyrus and Ann Miller. (Oct. 12). -- LOKSINS!
  • “Corky Romano”: Chris Kattan as the son of a Mafia boss (Peter Falk) who signs up as an FBI agent to see what they’ve got on the old man. (Oct. 19). -- CHRIS!
  • “Brotherhood of the Wolf“: Unusual French historical horror film with spectacular action sequences, elaborate special effects and crossover potential. (Nov. 2). -- Sá trailer þessarar í bíó um daginn... hmmm
  • “Windtalkers’’: Action master John Woo (“Mission: Impossible 2“) directs a World War II tale of a Marine (Nicolas Cage) assigned to a Navajo code expert. (Nov. 9). -- úllala, stríðsmynd frá Woo
  • “The Man Who Wasn’t There”: Latest from the Coen Brothers (“O Brother Where Are Thou”) is a stylish, black-and-white homage to film noir that starts out with a barber (Billy Bob Thornton) trying to blackmail the boss (James Gandolfini) of his wife (Frances McDormand). (Nov. 9). - COEN!!!
  • “Spy Game’’: A retired spy (Robert Redford) rescues his protégé (Brad Pitt) in this thriller directed by Tony Scott. (Nov. 21). -- TONY!!!
  • “Super Troopers’’: Sort of a cult comedy version of “Police Academy” about wacky state troopers in Vermont, with Brian Cox. A hot ticket at Sundance. (Nov. 30). -- huhhh!!!?
  • “Ocean’s 11”: Remake of the Brat Pack classic about a casino heist, with a starry ensemble headed by George Clooney, Brad Pitt and Matt Damon. Directed by Oscar-winner Stephen Soderbergh (“Traffic”). (Dec. 7). -- now we're getting somewhere
  • “Heaven”: The latest from German director Tom Tykwer (“Run Lola Run”), a revenge drama starring Cate Blanchett and Giovanni Ribisi. (Dec. 7). -- ohhhh Lola!
  • “Vanilla Sky”: Cameron Crowe’s followup to “Almost Famous” reunites him with his “Jerry Maguire” star, Tom Cruise, in a remake of the Spanish romantic thriller “Open Your Eyes” with Penelope Cruz and Jason Lee. (Dec. 14). -- Cruise, Cruz.... woha!
  • “Lord of the Rings”: The first of three lavish movies derived from J.R.R. Tolkien’s triology, with Cate Blanchett. (Dec. 19). -- tatatatamm
  • “Gangs of New York”: Martin Scorsese directs Leonard Di Caprio, Daniel Day Lewis and Cameron Diaz in a crime epic set in 19th-century Gotham. (Dec. 21).
  • “The Majestic”: Jim Carrey makes another bid for an Oscar as an amnesiac blacklisted writer who’s mistaken for a World War II hero. Directed by Frank Darabont (“The Green Mile”) (Dec 21).
  • “The Shipping News”: Lasse Hallstrom (“The Cider House Rules”) directs another Oscar-seeking adaptation of a best seller, this one starring Kevin Spacey, Cate Blanchett and Judi Dench. (Dec. 25). -- djöfull er fínt að fá eina á ári frá Lasse
Hvahh... ekkert meira?

@ 11:11 °°
Ég get nú hæglega toppað Gummajoh sem var með ritstjóra á blaði fyrir utan dyrnar hjá sér, því ég var með ritstjóra hjá ákveðinni útgáfu við sama borð og ég á Gauknum í kvöld. Ekki óálitleg í þokkabót... say no more... (að vísu var engin kaka á Gauknum...)
@ 02:47 °°

Blogg geimsins fer mikið í taugarnar á mér, þ.e. framebuster scriptið, sem þýðir að Nagportal-inn fer í algjöra köku þegar maður er að nota rammaútgáfuna! Laga laga laga laga...
@ 21:21 °°
Ég hlakka til að eignast Basic Instinct og Total Recall (tvær Verhoeven myndir) á DVD... sjá þessa umbúðafrétt.

Á NYPOST er líka magnaður dómur um plötu Toploader, þar sem þeir tala um "Dancing in the Moonlight" sem "low point"...
@ 21:11 °°


Maður er léttur, enda í lakkleysisvímu, sem er alls ekki ódýrt en þrælgott engu að síður. Fyrir dyrum standa tónleikar á Gauknum... Singapore Sling... sem verður afar áhugavert!
@ 21:05
°°
Fyrir vinnuþreytta (en ég er einmitt ekki þar á meðal): A Hong Kong psychiatrist has a simple prescription for people who feel too stressed at work -- do just 70 percent of what the boss asks you to do.

Hér er svo ein góð af T

@ 18:20 °°




Eldri skrif

Powered by Blogger