6.4.01

Núna er vikan á enda og kærkomin hvíldarhelgi framundan. Það verður reyndar pínusundmót í fyrramálið í Kópavoginum. Fyrsta útimót ársins og fyrsta mótið í 50 metra brautinni. Við erum með um 25 keppendur á mótinu sem flestir eru að spreyta sig við löngu brautina í fyrsta skipti. Það verður fróðlegt að sjá.

  1. Allir fuglar hafa stél. Össur hefur ekki stél.
  2. Allir fiskar hafa sporð. Össur hefur ekki sporð.
  3. Össur er hvorki fugl né fiskur. QED.
Þær skoðanir sem kunna að vera settar fram á vefsíðum Sunddeildar KR endurspegla ekki skoðanir stjórnar, þjálfara eða annarra sem starfa með deildinni.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 23:01

3.4.01

Fyrsta æfingin með nýjan A hóp var í kvöld. Mér leist vel á hópinn, hann mun geta synt þvílíkar æfingar að mig er farið að klæja í æfingaskrifelsisputtana. Núna verður bara 10x200 skrið á 3:30 og læti. Reyndar verður fyrsta vikan frekar róleg. Fyrsta æfingin með nýjan B hóp verður á morgun. Hópurinn verður fullskipaður í næstu viku og ég er farinn að hlakka til.

Þeir sem átta sig ekki á því hvað er hér um rætt eru breytingar á hópunum okkar í deildinni. B hópurinn var orðinn svolítið ofvaxinn eins og fleiri hópar og þess vegna varð að skipta hópnum upp. Ný nöfn eru um leið tekin upp á hópana og heitir nú A hópurinn fyrrverandi Úrvalshópur. Eldri hluti B hópsins fyrrverandi heitir nú A hópur og yngri hlutinn verður áfram B hópur.

Nú er enn betra tækifæri en áður fyrir sundfólk í þessum hópum til að auka getu sína. Þessi nýja hópaskipan gerir æfingaskipulagið markvissara og vinnu á æfingum samfelldari. Umhverfið á hverri æfingu verður meira hvetjandi og félagarnir veita meiri keppni. Þetta tækifæri hvet ég alla syndara til að grípa og hraða för sinni til stjarnanna.

Hraðar. Hærra. Sterkar.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 00:00

27.3.01

Jæja þá, ætli innilaugarmálið okkar fari á fullt núna? Við höfum lítið unnið í því síðan síðasta sumar en núna bregður svo við að framtakssamur fastagestur í Sundlaug Vesturbæjar hóf söfnun undirskrifta. Við ætlum að hjálpa til við undirskriftasöfnunina og halda áfram kynningunni á innilaug í Vesturbænum. Ég hlakka ennþá til laugarinnar.

Er vorið ekkert komið? Það er alla vega komið í augun á mér...

"Winners never quit and quitters never win"
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 14:50

26.3.01

Þá er búið að tilkynna uppskiptingu B hópsins. Honum verður skipt í tvennt og kemur breytingin öllum til góða. Ný stundatafla tekur gildi 1. apríl.

Ég er ennþá að lesa bókina eftir Guðmund frá Miðdal. Bókin svíkur ekki en ég á ennþá eftir að finna tíma til að pikka upp kaflann (ef ég fæ einhvers staðar leyfi...).
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 22:10

11.3.01

Vá hvað ég er farinn að hlakka til IMÍ. Bryndís Ólafs kemur að synda og fleiri traustir. Þetta verður algjört bíó. Keppendalisti IMÍ er kominn.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 23:15

8.3.01

Ég komst í alveg frábæra bók í gær. Hún er skrifuð af Guðmundi Einarssyni frá Miðdal (pabba Ara Trausta (Hrausta) og Errós), íþróttakennara og listamanni. Bókin var gefin út árið 1946 og heitir "Íslenskir fjallamenn". Sérstaklega gladdi mig fyrsti kaflinn sem ég las. Kaflinn heitir "Líkamsmennt og fjallaferðir" og fjallar hann um hnignun og úrkynjun íslensku þjóðarinnar og hvernig hægt sé að snúa þróuninni við. Besta ráðið er að reka allt stóðið á fjöll. Guðmundur ræðir um það hversu miður honum þyki að sjá unga menn með hendur í vösum jafnt sumar sem vetur, bogna í baki, með hangandi höfuð og draga á eftir sér fæturna. Svipaða sögu segir hann af kvenfólkinu og hvetur til vitundarvakningar um líkamsmennt.

Þetta er svo brillíant kafli (pínuöfgakenndur en virkar vel) að ég er að spá í að birta hann að hluta eða í heild hér á Sunddeildarvefnum.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 11:08

7.3.01

Það er margt skrýtið í kýrhausnum. Stofnuð hafa verið samtökin NARBI (National Association to Remove Breaststroke from the IM). Eins og nafnið gefur til kynna eru stofnendur samtakanna ekki góðir í bringusundi og vilja losna við það úr fjórsundi. Þetta er bráðfyndin uppákoma. Á heimasíðu samtakanna segir m.a. að bringusund sé hægt og að maður tapi alltaf fyrir keppinautum sínum á bringusundshluta fjórsundsins. Þeir segja: "Breaststroke is BAD. Breaststrokers are weird people."

Bringusundið er frábrugðið hinum sundaðferðunum þannig að það er eina aðferðin sem krefst þess að hendur færist fram undir vatnsyfirborði og fætur beygjast meira en í hinum aðferðunum. Þetta hægir venjulega á sundinu en sé maður nægilega útsmoginn er hægt að komast hjá þessu. Það er hægt með góðri tækni. Málið er nefnilega að til þess að verða góður sundmaður á maður ekki að hreyfa sig hraðar eða hamast meira heldur umfram allt að vanda tæknina.

Samtökin NARBI segja að bringusundsmenn séu skrýtnir. Ég þori nú ekki að taka afstöðu til þess en NARBI eru líklega að hvetja til heilalauss sunds, þ.e. að maður þurfi ekkert að hugsa á meðan maður syndir. Með því að draga úr mikilvægi bringusundsins værum við um leið að draga úr fjölbreytni íþróttar okkar. NARBI er auðvitað bara spaugilegt fyrirbæri, fyndin hugmynd en ágæt áminning.

Sundfréttir.is uppgötvuðu síðuna.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 11:50

5.3.01

Alveg hellingur af KR-ingum á leiðinni á IMÍ. Það verður gaman í Vestmannaeyjum.

Ég var á fjöllum um helgina. Lenti í stormi og blindu veðri og var óratíma í óbyggðum. Með traustum ferðafélögum var þetta svo sem ekkert mál en það var eiginlega besti hluti ferðarinnar að komast heim, í heita sturtu og undir sæng. Það var allt svo litríkt og ljúft í bænum. Það kryddar nefnilega lífið að fá að lenda í hrakningum í stað þess að sitja alltaf á rassinum og aðhafast ekkert. Ekkert til þess að setja lit í tilveruna.

Þetta ferðalag á sér hliðstæðu hjá okkur í sundinu. Þótt maður taki ekki eftir því á hverjum degi þá eru sundæfingarnar heilmikið krydd í tilveruna. Þetta eru svona hálfgerðar hrakningar sem við lendum í... erfið sett, þraut og pína... en það verður allt svo grænt og gott eftir æfingarnar. Það væri ekki svona vænt og grænt án þeirra.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 12:57

26.2.01

Það er alveg merkilegt hvað Ameríkanar eru sér á báti. Þeir verða ferlega fúlir ef stjarnan þeirra vinnur ekki á Ólympíuleikum heldur einhver Evrópubúi. Síst voru þeir ánægðir með Massi Rossolino á leikunum. Orðrómur komst á kreik um lyfjanotkun en ekkert sannaðist. Svona orðrómur kemst æði oft á kreik þegar íþróttafólk nær góðum árangri en oftar en ekki er rógburðurinn byggður á sandi.

Þetta er bara tapsárt fólk. Lesið um þetta á nuoto.it. Og ég sem hélt einu sinni að Swimming World væri aðalblaðið! Swimming World er rangnefni og þjóðrembingurinn sem hefur lifað lengi í bandaríkjum Norður-Ameríku er leiðinlegur. Reyndar er svipaður þjóðrembingur illu heilli að myndast í Evrópu til mótvægis.
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 16:30

Þetta var góð helgi. Þótt erfitt sé að standa standa á sundlaugarbakkanum í hitanum, rakanum og bleytunni var helgin skemmtileg. Helgin var skemmtileg af því að fólkið var gott. Krakkarnir okkar, þjálfararnir, og síðast en ekki síst stjórnarfólk og foreldrar í deildinni okkar. Við trítluðum upp í Austurbæjarskóla til að fá hádegismat báða dagana og þar ríkti mikil gleði. Þótt framkvæmd svona stórra sundmóta reyni á er hún svo gefandi að það er allt í lagi þótt maður fái smá bakverk og harðsperrur og hausverk. Þetta verður líka skemmtilegra með hverju árinu sem líður.

Árangurinn um helgina var líka góður. Flestir bættu sig a.m.k. í einu sundi og Sunddeild KR er að færast upp á hærra stig. Núna er eldri hluti B hópsins orðinn jafnsterkur og A hópurinn var fyrir fáum árum síðan. A hópurinn styrkist sífellt og sundfólkið bætir sig. Þegar svona vel gengur verður maður að vera meðvitaður um fallvaltleika velgengninnar. Þetta getur verið brothætt en ég sé þó ekki ástæðu fyrir því að okkar deild sé í hættu. Þvert á móti er nú mjög breiður hópur jafnaldra sem ryður brautina, æfir vel og hefur áhuga á árangri.

Gaman er að sjá sundfélög rísa upp eftir nokkra hvíld. Nú er Vestri með sprengilið og Þór Sveinsson vann drengjaflokkinn á betri tíma en piltaflokkurinn vannst á. Þór fór á kostum á mótinu og fleiri að vestan gerðu það gott. Lið Óðins er að verða nokkuð góð heild og vonandi hafa Akureyringar nú fengið þjálfara sem staldrar lengur við en eitt ár. UMFT frá Sauðárkróki og UMFT á Tálknafirði komu líka með góð lið og er ánægjulegt að vita til þess að gott starf sé unnið hjá félögunum.

Vonandi er að félögin sem komu á 17. Unglingamót KR komi aftur að ári. Ennfremur vona ég að við fáum betri aðstöðu til að gera mótið betra og sundkeppni þægilegri fyrir alla. Með tveimur viðbótarbrautum í sundlaug má stytta tíma sundmóts um þriðjung. Í stað þess að standa á sundlaugarbakkanum í fimm tíma myndi okkur nægja að standa þar (eða sitja á árhorfendapöllum) í rúma þrjá tíma. Sem dæmi má nefna að á laugardaginn stóð mótið yfir frá 9 til 14 (upphitun kl. 8) og foreldrar og aðrir áhorfendur voru margir ósáttir við langa bið. Við hefðum klárað þetta rúmlega tólf í sex brauta sundhöll í Vesturbænum...
Syndari: Kristján Haukur Flosason klukkan 15:03


Powered by Blogger