|
Ýmislegt
Eyverjar
70 ára
Greinasafn
Ýmsir hlekkir
Eyverjasalurinn
Góðar
síður
Sjálfstæðisflokkurinn
SUS
Heimdallur
Vestmannaeyjabær
ÍBV
Eyjafréttir
Markmið Eyverja:
Að berjast fyrir víðsýnni
framfararstefnu í þjóðfélaginu með
hagsmuni allra stétta að leiðarljósi.
|
18.9.01
36. þing SUS Þá er þinginu lokið og var það Ingvi Hrafn Óskarsson sem var kosin formaður félagsins næstu 2 árin. Málefnastarf þingsins var öflugt og er hægt að skoða greinargerðir og annað tengt þinginu á www.sus.is
HKarl :: 13:16
7.8.01
36. þing SUS á Seltjarnarnesi 14. til 16. september 2001
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hefur ákveðið að halda næsta þing sambandsins á Seltjarnarnesi 14. til 16. september nk. Baldur, f.u.s. verður gestgjafi þingsins. Dagskrá, samkvæmt lögum og venju, og tilhögun málefnastarfs verða auglýst síðar á SUS.is.
Munið að skrá netfang á netfangalista SUS, með því að senda póst á sus@xd.is.
Skapti Örn 17:31
20.7.01
"Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum."
Vestmannaeyjum 19.07.01
Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, vilja koma eftirfarandi á framfæri.
Eyverjar harma þann mannlega harmleik og það fjölmiðlafár sem einkennt hefur málefni Árna Johnsen 1. þingmann suðurlandskjördæmis síðastliðna daga. Eyverjar taka ekki upp hanskann fyrir þingmannin í málefnum hans við íslensku þjóðina og verður hann að gjalda fyrir gjörðir sínar sem hann hefur og gert með afsögn sinni sem þingmaður.
Eyverjar fordæma hins vegar það fjölmiðlafár sem einkennt hefur málefni þingmannsins síðustu daga sem oft og tíðum hefur einkennst af nornaveiðum heldur en fagmannlegum vinnubrögðum. Svo virðist sem umfjöllun um málið hafi miðast við það að hengja þingmanninn áður en sekt er sönnuð og oftar en ekki hefur verið sparkað í liggjandi mann. Er það óafsakanlegt.
Við búum í lýðræðisþjóðfélagi og eigum heimtun á réttmætri og gagnrýninni umræðu en ekki umræðu sem miðast við að sakfella mann áður en sekt er sönnuð.
Árna Johnsen hefur orðið illilega á og hefur nú ákveðið að taka ábyrgð á gjörðum sínum með afsögn. Árni hefur gert margt gott fyrir Eyjarnar á löngum og farsælum þingferli og verður að hafa það í huga þegar pólitískt starf hans er skoðað.
Að endingu skulum við hafa orð Frelsarans að leiðarljósi því þau eiga svo sannarlega vel við núna. "Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum."
Stjórn Eyverja.
Skapti Örn 18:29
10.5.01
Kjósendur eru tryggir flokknum sínum Dagana 30. apríl til 4. maí sl. stóðu nemendur Framhaldsskólans, undir stjórn kennara síns, Elliða Vignissonar, að skoðanakönnun meðal bæjarbúa um ýmis bæjarmálefni. Þátttakendur í könnuninni var 80 manns, 18 ára og eldri. Skipting svarenda milli kynja og aldurs var í réttu hlutfalli. Það er nokkuð ljóst þegar maður rýnir í tölurnar að Sjálfstæðisflokkurinn heldur fylgi hér í Eyjum en betur má ef duga skal!
Meðal spurninga í könnuninni var: Hvað kaustu í síðustu bæjarstjórnarkosningum? 39% sögðu X-D 35% sögðu X-V 11% sögðust hafa skilað auðu 11% sögðust ekki hafa kosið 4% svöruðu ekki
Þá var spurt: Ætlar þú að kjósa aftur? 19% sögðu já 44% sögðu sennilega 16% sögðu sennilega ekki 11% sögðu nei 10% svöruðu ekki
Skapti Örn 18:47
1.5.01
Meistarinn við völd í tug ára Davíð Oddson forsætisráðherra hefur um þessar mundir setið óslitið á forsætisráðherrastól í 10 ár og geri aðrir betur. Eyverjar vilja óska honum og í raun öllum sjálfstæðismönnum á landinu til hamingju með árangurinn. Eyverjar vona og óska þess að meistari Davíð sé ekki orðinn saddur og sitji nokkur góð ár í viðbót á ráðherrastól.
Skapti Örn 01:05
3.4.01
Fylgi við Sjálfstæðisflokk og ríkisstjórn eykst Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur farið vaxandi síðasta mánuðinn samkvæmt könnunum Gallups sem birt var í fréttum RÚV í dag. Fylgi flokksins mælist nú 42% en var 38% í síðustu könnun Gallup. Þá eykst stuðningur við ríkisstjórnina að sama skapi eða úr úr 54% í 57%.
Skapti Örn 14:39
12.3.01
Áfram Liverpool Liverpool sökkar!!!
Skapti Örn 14:34
9.3.01
Bubba frestað! Tónleikum Bubba sem vera áttu í bæjarleikhúsinu í dag (föstudaginn 9/3/01) hefur verið frestað um óákveðin tíma. Þó svo að Bubbi komi ekki hvetjum við alla eindregið til að mæta á fíkniefnafundinn sem haldin verður 10/3/01 þar sem rætt verður þetta viðkvæma mál.
HKarl :: 11:37
Fíkniefnafundur Eyverja Laugardaginn 10/3/01 verður fíkniefnafundur haldinn í Ásgarði við Heimagötu. Fundinn sitja Tryggvi Kr. Ólafsson, Karl Gauti Hjaltason, Elliði Vignisson og Theodór Kristjánsson frá RLR. Fundurinn hefst kl 15:00 á Stuttri framsögu þessara aðila og eftir það verða léttar umræður og tekið við spurningum úr sal. Eyverjar hvetja alla til að mæta og sýna að þetta er málefni sem varðar okkur öll. A.T.H. Þessi fundur er ætlaður öllum aldri.
HKarl :: 11:34
21.2.01
Snókermót Eyverja Snókermót á vegum Eyverja verður haldið nk. helgi í salarkynnum félagsins, Eyverjasalnum. Vegleg verðlaun í fljótandi formi verða í boði. Skráning í síma 698-5441 eftir klukkan 16:00
Skapti Örn 13:30
Eldri fréttir finnur þú hér
|
|