tirsdag, september 11, 2001

12:59-1 klst
Ákvað að breyta vefnum þannig að einungis eru bannaðar sígarettu reykingar á honum svo að þeir sem reykja eitthvað annað geti nú droppað inn við og við.

12:18-1 klst
Hef verið að tékka aðeins á Muzik.is fm 89.0 og heyrði þar þetta magnaða lag. Flytjandinn er hin eitursvali dani L:Ron:Harald

lørdag, september 08, 2001

17:05-1 klst
Í dag er góður. Sindri var að vinna KÍB 5-0 og Afturelding gerði jafntefli við Leikni þannig að Sindri er farinn upp um deild og spilar að öllum líkindum með KR í deild á næsta ári.

fredag, august 31, 2001

12:06-1 klst
Eftir skóla í dag það er klukkan 12:45 ætla ég að leggja af stað austur á Höfn á gamla góða bílnum mínum sem er Toyota Corolla 87. Þetta mun verða hanns síðasta ökuferð um þónokkurn tíma þar sem hann hefur ákveðið að leggjast í dvala í vetur og svo verður bara að koma í ljós hvort að hann kemst á fætur aftur í vor.

tirsdag, august 28, 2001

20:24-1 klst
Ok þá er nú víst skólinn byrjaður aftur og hef ég svosum ekkert um það að segja í bili en hitt kom mér þó á óvart er ég var að lesa síðuna hanns lubba að núna erum við bara alltíeinu orðnir bekkjarbræður og vinur hanns rocco líka. Þá spyr ég nú bara hvar er simbinn minn. Svo á morgun á lubbi að rísa á fætur og segja "ég er lubbi" svo að maður viti hver hann er.

torsdag, august 23, 2001

19:45-1 klst
Klukkan 20:00 fer ég í boði Jóa og Undirtóna að sjá

15:01-1 klst
Ég er nú kannski ekki sá allra duglegasti við að blogga en fann mig tilneyddan til að setja hérna nokkrar línur. Málið er það að Simbinn hefur sett mig inn í sitt bloggwatch tól og varð ég að komast efst á það ;)

ps. Takk til Simbans fyrir að leyfa mér að vera memm

torsdag, august 16, 2001

18:22-1 klst
Er að prófa að blogga með nýja tólinu blogBuddy

14:17-1 klst
Héðan í frá er þessu vefur reyklaus hvað sem að það nú þýðir. Eftir að hafa lesið þetta tók ég þessa ákvörðun enda vill maður nú ekki vera lögbrjótur ;)

tirsdag, august 07, 2001

16:05-1 klst
Ég lenti í hræðilegu slysi um helgina þegar að ég var staddur á Skagaströnd

Málið var að ég sat í mestu makindum á kannti bakvið sjoppu og datt svo bara afturfyrir mig og á ruslagám reyndar datt Gunnar líka en slapp við gáminn en fékk í staðinn mig ofan á sig.

tirsdag, juli 31, 2001

12:09-1 klst
Jet Black Joe voru nú bara ágætis band. Kom mér nú samt á óvart að þeir Gunnar Bjarni og Páll Rósinkrans skuli ætla að spila saman á ný eftir allt sem að gekk á hér á árum áður og miður fallag ummæli sem látin voru falla.

fredag, juli 13, 2001

11:41-1 klst
Veit ekki hvað kom til að mér datt þetta í hug rétt áður en að ég sofnaði í gær. Þannig er mál með vexti að stúlka ein sem að ég kannst við er mjög umhugað um andrúmsloftið sem að við öndum að okkur og veit fátt verra en að bílar séu skildir eftir í lausagangi. Það er svosem ekkert sem fer í taugarnar á mér við það en þá kem ég að kjarna málsins þessi sama stúlka hinsvegar tekur upp á því við ólíklegustu tækifæri að reykja vindlinga og finnst ekkert athugavert við að anda að sér öllum þeim eiturefnum sem þaðan er að fá og blæs síðan frá sér reyk sem að við hin sem ekki reykjum þurfum að anda að okkur. Já það er margt sem að flýgur um huga manns rétt fyrir svefninn.


torsdag, juli 12, 2001

12:05-1 klst
Ég ætla kannski aldrei að nota þetta blogg en kannski ætla ég oft að skrifa eitthvað. Ef að mér dettur eithvað sniðugt í hug þá verður það sett hér