Sendu mér línu

|- ég -|
gvg@hi.is Upplýsingar



|- daily basis -|
Babetestið
Soccernet.com
Teamtalk
Stoke City
Sævar
Íris
Senda okkur SMS



|- Nice places -|
HTML
NASDAQ







This page is powered by Blogger. Isn't yours?

- Freiburg -

Já við skelltum okkur til Freiburg í dag fyrir aðeins 10 DEM. Það var svo sem alveg ágætt en féll svolítið í skuggan af Baden Baden sem var á vafa miklu skemmtilegri og fallegri borg. Við töltum þarna um og skoðuðum krikjuna, ráðhúsið ofl. Einnig löbbuðum við uppá Schlossberg í von um að finna rosa flotta höll ofan á fjallinu en svo reyndist ekki. Þetta var bara ágætist útsýnisstaður yfir borgin en það vantaði Schlossið(Höll á ísl.). Semsagt bara ágætur staður en ekkert spes. Fær ekki nema einn og hálfan túrista

Ég gleymdi víst að gefa Baden Baden túristeinkunn í gær þannig að hérna kemur hún. Baden Baden fær 4 túrista.
|gvg 20:12|

Ég ætla nú bara að biðja ykkur um að fyrirgefa mér hversu illa þessi síða hefur verið uppfærð. Ég hef ekkert gert síðan 29. apríl. Das ist nicht sher gut. En núna stendur það vonandi til bóta. Ég er að vinna í því að búa til síðu sem inniheldur upplýsingar um okkur, hvað við erum að gera hérna, síma og heimilsfang osfrv. Þessi síða ætti að vera kominn inn áður en langt um líður. Ég vil því hvetja alla til þess að hætta ekki að kíkja hérna inn heldur sýna bara smá biðlund.

Í gær fór ég til Baden Baden með Írisi og Sævari og vini þeirra. Veðrið var jafn gott og vanalega ef ekki bara heitara. Glampandi sól og hit. Við löbbuðum um allan bæinn og skoðuðum. Síðan tókum við Bergbahninn upp á einhvern tind og sáum yfir allt svæði. Gríðarlega falleg sjón. Í Baden Baden eru margar rosalega flottar og gamal byggingar sem gaman er að skoða. Bærinn liggur líka í dal þannig að þetta verður allt saman ansi magnað þegar röltir þarna um í sakleysi sínu. Sundlauginn á staðnum er ekki af verri gerðinn og má til gamans geta að það kostar "ekki" nema 20 DEM fyrir 2 klst.

Á morgun er ferðinni heitið til Freiburg og þar á að spássera um og kanna svæðið. Hér með heiti ég ferðaskýslu þaðan eigi seinna heldur en á sunnudaginn.
|gvg 18:13|

- Teikning af íbúðinni okkar -

Svona lítur íbúðin okkar út. Þetta var teiknað í Paint þannig að þetta er birt með miklum fyrirvara um gæði og nákvæmni. Smellið fyrir stærri mynd.

Teikning

Í dag fór ég í tennis með Árna í 25° hita og glampandi sól. Gott ef ég hef bara ekki tekið lit. Veðrið er alltaf að verða betra og betra með hverjum deginum sem líður og þetta fer bráðum að verða bara ansi gott. Á meðan ég svitnaði í tennis var Stefanía svo ánægð að vera komin með nettengingu og nýtt netfang (stefania2603@hotmail.com) að hún eyddi meirihluta dagsins í það að skrifa og senda nokkra pósta.

Einnig ætla ég hér með að lofa því að það verða settar inn nýjar myndir á síðuna á morgun.
|gvg 22:31|

- Netið er komið í lag!!!!!!!! -

Jibbí.....loksins er ég kominn með netið inní íbúðina okkar og hraðinn er gríðarlegur => 50 kbytes á sek....yessssss. Þetta gekk loksins eftir hraðkúrs í netsamböndum sem við og Árni tókum á innan við tveimur dögum. Þetta þýðir að við erum að samnýta eina ADSL tengingu og spörum okkur c.a. 40 DM á mán. Ekki slæmt.

Þetta þýðir að heimasíðan verður brátt uppfærð með nýjum myndum og sögum. Einnig get ég svarað póst samdægurs, eitthvað sem ég gat ekki gert áður.
|gvg 22:07|

- Síminn er kominn í lag!!!!!!! -

Eins á má lesa úr fyrirsögninni hér að ofan er síminn okkar kominn í lag, loksins. Hann er og verður ef hringt er frá Íslandi 00-49-721-830-4240. Við erum við símann núna!
|gvg 22:06|

Fyrir ykkur sem ekki ennþá eru með heimilsfangið okkar á hreinu, til þess að senda okkur skemmtilegar myndir eða íslenskt nammi þá er það:

Hans-Sachs-Strasse 11
76133 Karlsruhe
Deutschland

Annars er allt gott af okkur að frétta. Við fórum í IKEA í gær á mensubílnum sem ég mátti víst ekki keyra en það uppgvötuðum við ekki fyrr en eftir á. Við versluðum okkur svefnsófa, kommóðu ofl. Í kvöld borðuðum við okkar fystu kvöldmáltíð í íbúðinni okkar og var þar á ferðinni einföld máltíð, samloka með skinku, osti, sinnepi, káli, papriku og steiktum lauk. Síðan skoluðum við þessu niður með pepsi og bjór. Þetta var allt saman fest á filmu og verður einhverntíma sett inn á heimasíðuna.
|gvg 22:56|

- Máling og endalaus þrif..... -

Ég veit ekki hvenær þetta tekur allt saman enda. Ég er næstum því búinn að mála allt saman og hefði klárað það í kvöld nema hvað að það vantað c.a 1l til þess að geta klárað að mála loftið => ótrúlega svekkjandi. Stefanía hamast við að pússa allan daginn enda veitir ekki af. Við vonum þó að þetta klárist að mestu leyti á morgun eða hinn.

Við ætlum að leigja okkur mensubíllinn (mensa = mötuneytið) einhverntíman í vikunni og skreppa í IKEA. Þar ætlum við að kaupa okkur svefnsófa, kommóðu o.f.l.. Á föstudaginn gengum við hinsvegar frá kaupum á þvottavél, ryksugu, skanna og straujárni. Mikill léttir það.

Símavandamálin eru enn til staðar. Ég veit ekki hvenær þau komast í lag. Ég fór tvisvar niður í DT (Deutsche Telekom) á föstudaginn og reyndi að mikið að kvarta en það gekk svona frekar illa. Þjónustulundin er ekki alveg til staðar þegar þú hefur svona greiðan aðgang að 80 milljóna manna markaði. Þeir lofuðu mér allaveganna að einhver myndi hringja í GSM hjá mér og líta við og kippa þessu í lag.

Páskafríið okkar byrjar frá og með næsta fimmtudegi og þá tekur við stífur próflestur hjá mér. Stefanía ætlar að nota tímann til þess að leggja lokahönd á íbúðina. Ég ætla þó að reyna að setja inn nýjar myndir sem allra fyrst.
|gvg 21:15|

- Símanúmer, íbúð ofl. -

Loksins fengum við íbúðina núna á laugardaginn. Hún var ekki eins vel þrifin og máluð eins og við áttum von á þannig að við þurfum aðeins að vinna í henni áður en við getum flutt inn. Sú vinna hófst á laugardaginn og er komin vel á veg. Við erum búinn að mála tvö herbergi og þrífa eitthvað. Samt er ennþá töluvert eftir.

Dótið okkar kemur í fyrramálið klukkan 08:00 og síðan förum við í skólann til klukkan 16:00. Þetta verður langur dagur á morgun skal ég ykkur segja. Við fórum í dag og nældum okkur í símanúmer og það byrjar að virka næsta fimmtudag (04.04.01). Síminn hjá okkur er (ef hringt er frá Íslandi) 00-354-721-830-4240.

Spurning hvort að ég minnist ekki aðeins á veðrið fyrst ég er hvort eð er að slá þetta allt saman inn. Í dag var mest 26°C en svona að meðaltali 24°C, sól og heiðskýrt. Hitinn ákkúrat þessa stundina er 21°C enda að koma kvöld.
|gvg 19:34|

- Netfang -

Bara svona rétt til þess að minna fólk á þá er netfangið mitt/okkar þessa stundina gisli_valur@hotmail.com

Annars var dagurinn frekar tíðindalítill....og ég nenni ekki að skrifa meira um það.

þangað til næst......
|gvg 22:31|

Mér finnst ég þurfa að tjá fólki það að hérna er klukkan rétt rúmlega 19:00 og það er 12°C úti. Einnig vil ég taka það fram að 1/2 líter af bjór í glerflösku kostar 42 kr.
|gvg 18:53|

- Wir haben endlich unser Visum bekommen -
- á ísl. Við fengu loksins Visumið okkar. -

Klukkan 06:27 á íslenskum tíma í morgun fengum við Visumið okkar eftir mikið vesen. Ég þurfti ekki einusinni að láta öll þessi ljósrit af hendi en Stefanía þurfti þess. Hversvegna langar mig ekki að vita. Í framhaldi af þessu gengum við frá bankamálum, rafmagni og tollafgreiðslu búslóðarinnar. Mikill léttir það skal ég ykkur segja. Núna held ég að þessi "bjúrókratía" sé loks á enda. En hver veit.

Í kvöld ætlum við Árni að hafa það gott fyrir framan imban, sötra bjór og horfa á einhverja landsleiki. Þó grunar mig að kvennmennirnir, sem eru í meirihluta, samþykkji það ekki alveg.


|gvg 16:36|

- Skrifinskan heldur áfram -

Í dag gerðum við heiðarlega tilraun til þess að skrá okkur inní landið. Ég var mættur á skrifstofuna klukkan átta til þess að forðast allar biðraðir og rétt marði það að vera fyrstur í G-inu. Ég gekk inn og sagði manninum hvað ég vildi og þá rétti hann mér pappíra sem ég þurfti að fylla út og vísaði mér út. Eftir að hafa fyllt út skjölin þá voru c.a 4 á undan okkur og hver getur verið í allt að 30 til 60 mín. inni í einu. Við gripum því til þess ráðs að fara á S-skirfstofuna og reyna þar. Það eru nefnilega herbergi fyrir ákveðna stafi í eftirnafninu þannig að S herbergið gæti virkað fyrir okkur bæði alveg jafnvel og G herbergið. Þar biðum við í nokkrar mín. og fengum svo að fara inn. Þar tók á móti okkur kona sem tjáði okkur að við þyrftum fyrst að fara og skrá okkur inní borgina og síðan að taka afrit af öllu saman og þá værum við loks tilbúinn til skráningar.

Þetta endaði síðan allt með því að við skráðum okkur inní borgina og ljósrituðum pappírana. Við munum síðan mæta galvösk í fyrramálið, enda bara opið milli 8 og 12 alla virka daga nema fimmtudaga, áður en við förum í skólann.

Eftir allt þetta vesen er ljóst að Þjóðverjar eru ekki alveg skilvirkustu manneskjur í heimi.

Í dag fórum við einnig og fengum okkur þýskt GSM-númer en það er (ef hringt er frá Íslandi) 00-49-0160-91848736.

|gvg 17:33|

Hérna eru myndir úr verðandi íbúð okkar í þýskaland. Heimilisfangið er:

Hans-Sachs-Strasse 11
76133 Karlsruhe
Germany

Eldhúsið Við í stofunni, horft úr eldhúsinu Horft úr stofunni inní eldhúsborðkrókinn
Hafið músina á myndunum til þess að fá útskýringar. Ýtið á myndirnar til þess að fá stærri mynd

Litli hornglugginn í stofunni Baðherbergið Svefnherbergið Horft úr svefnherbergi inní anddyri, sem er kassalaga rými með þrem hurðum inní baðherbergi, stofuna og svefnherbergið Gluggin í eldhúsborðkróknum
|gvg 21:21|

Hérna eru myndir úr ferð okkar til þýskalands veturinn 2000...

Erum við ekki sæt hmmmm, skálarstærð JJ minnir mig Nammi namm
Í heimsókn hjá Árna, Ólöfu og Birgittu


Svona var umhorfs í Darmstadt þar sem hagverkfræðin var kennd. Á myndunum erum við í portinu þar sem matsalurinn og hús hagverkfræðinnar eru.
|gvg 11:24|